Fara á efnissvæði
07. júní 2024

Rúmlega 200 sóttu um 16 stöðugildi

Vel hefur gengið að ráða í stöður svæðisstöðva ÍSÍ og UMFÍ, að sögn Hönnu Cörlu Jóhannsdóttur. „Við fengum umsóknir frá mörgum flottum og frambærilegum einstaklingum í stöðu starfsfólks svæðisstöðva íþróttahéraðanna um allt land. Afar vel hefur gengið að ráða í stöðurnar og nú eru aðeins tvö stöðugildi eftir,“ segir verkefnastjórinn Hanna Carla Jóhannsdóttir. Hún hefur stýrt fyrstu skrefum, innleiðingu og skipulagi svæðisstöðvanna.

Íslandi er skipt upp í 25 íþróttahéruð og er svæðisstöðvunum átta ætlað að styðja við innleiðingu á stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum, gera íþróttahéruðunum kleift að takast á við núverandi og fyrirséð verkefni þeim tengd, bæta þjónustu við iðkendur og auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með sérstaka áherslu á þátttöku fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Horft er til þess að fjölga tækifærum og gefa sem flestum tækifæri til að stunda íþróttir á því sviði sem þeir kjósa, hvort heldur til ánægju, heilsubótar eða með afreksárangri að markmiði. 

Tillögur um stofnun svæðisstöðvanna voru samþykktar á þingi ÍSÍ vorið 2023 og á þingi UMFÍ haustið 2023.

 

Klára að ráða á næstu dögum

Svæðisstöðvar íþróttahéraðanna eru átta um allt land og eru tvö stöðugildi á hverri stöð. Rúmlega 200 einstaklingar sóttu um störfin 16 sem auglýst voru.

Hanna Carla segir að á undanförnum vikum hafi verið tekin viðtöl við umsækjendur og verið frábært að sjá hversu margir sýndu störfunum áhuga. Nú sé búið að ráða í 14 stöðugildi af 16 og vonir bundnar við að ráða í störfin sem eftir eru öðru hvoru megin við helgi.

Fyrstu skrefin voru unnin með tengiliðum sem tilnefndir voru frá hverju íþróttahéraði í ráðningarferlinu í samstarfi við Hagvang.

Næstu skref í ferlinu tengjast praktískum atriðum á borð við aðgengi að gagnasöfnum og staðsetningu viðkomandi starfsmanns á hverjum stað. Í ágúst verður fundað um þjónustusamninga við íþróttahéruð og aðgerðaráætlun mótuð fyrir hvert svæði.

 

Eftirfarandi voru ráðin:

Höfuðborgarsvæðið:

Íris Svavarsdóttir / Sveinn Sampsted

 

Vesturland:

Álfheiður Sverrisdóttir / Heiðar Már Björnsson

 

Suðurnes:

Petra Ruth Rúnarsdóttir / Sigurður Friðrik Gunnarsson

 

Austurland:

Jóhann Árni Ólafsson / Jóhanna Íris Ingólfsdóttir

 

Suðurland:

Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir / Rakel Magnúsdóttir

 

Vestfirðir:

Birna F. S. Hannesdóttir

 

Norðurland eystra:

Hansína Þóra Gunnarsdóttir / Þóra Pétursdóttir

 

Norðurland vestra

Halldór Lárusson