Fara á efnissvæði
24. ágúst 2023

Sambandsþing UMFÍ á Hótel Geysi í október

53. sambandsþing Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) verður haldið á hótel Geysi í Haukadal dagana 20.-22. október næstkomandi.  Sambandsþing UMFÍ er haldið annað hvert ár og er það æðsta vald í málefnum hreyfingarinnar.

Sambandsþingið er fjölmennur viðburður fulltrúa íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar um allt land. Þarna er því gríðarlega gott tækifæri fyrir fólk til að hittast, skiptast á skoðunum, bera saman bækur sínar, læra og deila þekkingu með öðrum.

Á sambandsþingi eru veittar heiðranir fyrir störf í hreyfingunni auk þess sem kosið er til stjórnar. Þau sem áhuga hafa á stjórnarsetu geta boðið sig fram í aðdraganda þingsins. Mikilvægt er að áhugasamir einstaklingar gefi sig fram við kjörnefnd innan setts fyrirvara. Við bendum fólki á að kynna sér lög UMFÍ varðandi framboð.

Rétt til setu á sambandsþingi eiga fulltrúar sambandsaðila UMFÍ. Upplýsingar um fjölda þingfulltrúa sem eiga rétt til setu á sambandsþinginu eru fengnar úr skráningarkerfi íþróttahreyfingarinnar og eru þeir mismargir eftir umfangi sambandsaðila. Þeir sambandsaðilar sem mæta á þingið þurfa að skila inn kjörbréfum fyrir upphaf sambandsþings.

UMFÍ hefur tekið Hótel Geysi frá fyrir þingið og munu sambandsaðilar bóka gistingu hjá UMFÍ. Óskað er eftir því að sambandsaðilar sendi beiðni um fjölda herbergja fyrir 5. september næstkomandi. Þar sem gistingin er takmörkuð er óskað eftir því að sambandsaðilar reyni að samnýta herbergi eftir því sem kostur er.

Sambandsaðilar geta sent inn tillögur á þingið í samræmi við lög UMFÍ en þær þurfa að berast eigi síðar en 20. september á netfangið umfi@umfi.is.

Nánari upplýsingar um þingið verða sendar út þegar nær dregur.

 

Hér má sjá fleiri myndir af sambandsþingi UMFÍ á Húsavík 2021.