Fara á efnissvæði
20. október 2023

Sambandsþing UMFÍ um helgina

„Það hafa orðið miklar framfarir í íþróttahreyfingunni síðustu misserin, stór skref hafa verið stigin. Það er alveg ljóst af þátttöku á þinginu okkar að Ungmennafélagsandinn er síungur og eftirsóttur og margir vilja vera með. Ég skynja meiri áhuga hjá fólki á því að vinna saman í hreyfingunni,“ segir Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður Ungmennafélags Íslands.    

Sambandsþings UMFÍ hefst í dag og mun það standa yfir á Hótel Geysi í Haukadal um helgina.

Ljóst er að þetta verður eitt af fjölmennari þingum í sögu UMFÍ en um 180 manns hafa boðað komu sína á setningu þess föstudagskvöldið 20. október.   

 

Formaðurinn sjálfkjörinn  

Jóhann Steinar er sjálfkjörinn í embætti formanns. En þrettán keppa um þau tíu sæti sem í boði eru í stjórn og varastjórn UMFÍ og stefnir því í spennandi kosningar.  Fjölgunin endurspeglar mikla breytingu innan íþróttahreyfingarinnar og fjölgun félaga.  

Mikið hefur gerst í hreyfingunni síðustu árin. Fyrir fjórum árum var samþykkt umsókn þriggja íþróttabandalaga að UMFÍ. Það er Íþróttabandalags Reykjavíkur, Íþróttabandalags Akureyrar og Íþróttabandalags Akraness sem urðu aðilar. Í fyrra var það sögulega skref svo stigið að Íþróttabandalag Hafnarfjarðar varð sambandsaðili UMFÍ. Við það eru öll íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu innan UMFÍ og næstum öll íþróttafélög landsins.  

Ýmsar fleiri breytingar hafa orðið. Til viðbótar flutti þjónustumiðstöð UMFÍ inn í íþróttamiðstöðina í Laugardal fyrr á árinu og deilir sama húsi í fyrsta sinn með ÍSÍ og fleirum.   

   

Í kjöri til aðalstjórnar eru eftirfarandi einstaklingar:  

  • Ásgeir Sveinsson – Héraðssambandinu Hrafna-Flóka.  
  • Guðmundur G. Sigurbergsson – Ungmennasambandi Kjalarnesþings.  
  • Gunnar Þ. Gestsson – Ungmennasambandi Skagafjarðar.  
  • Gunnar Gunnarsson – Ungmenna- og íþróttasambandi Austurlands.  
  • Helgi S. Haraldsson – Héraðssambandinu Skarphéðni.  
  • Kristín Thorberg – Ungmennasambandi Eyjafjarðar.  
  • Málfríður Sigurhansdóttir – Íþróttabandalagi Reykjavíkur.  
  • Ragnheiður Högnadóttir – Ungmennasambandi Vestur-Skaftafellssýslu.  
  • Sigurður Eiríksson – Ungmennasambandi Eyjafjarðar.  
  • Sigurður Óskar Jónsson – Ungmennasambandinu Úlfljóti. 
Í framboði til varastjórnar eru: 
 
  • Guðmunda Ólafsdóttir - Íþróttabandalagi Akraness.  
  • Hallbera Eiríksdóttir - Ungmennasamband Borgarfjarðar.  
  • Rakel Másdóttir - Ungmennasambandi Kjalarnesþings.  

 

Smelltu hér og sjáðu meiri upplýsingar um sambandsþingið