03. ágúst 2017
Samdi vísu um tjaldbúðirnar
![](/media/odwf351y/tjaldbudir-1.jpg?width=400&height=400&v=1d9a9c8642b8f70 1x)
Philip Vogler á Egilsstöðum hefur samið skemmtilega vísu um Unglingalandsmót UMFÍ og tjaldbúðir sambandsaðila í bænum.
Tjaldbúðirnar eru geysistórar og stúkaðar niður eftir sambandsaðilum. Mikil og góð stemning ríkir á meðal gesta á tjaldsvæðinu og ungmennafélagsandinn sterkur þar. Myndin hér að ofan var tekin um hádegisbil og hefur gestunum fjölgað mikið síðan þá.
Vísa Philips er svohljóðandi:
Tjald upp setja, tjasla og laga,
Tekur vindur á í haga.
Sofa vel með mat í maga,
Mæta þá með bros og aga.
Hér má sjá fleiri myndir sem teknar voru af þátttakendum og fjölskyldum þeirra ná í mótsgögn í mótsstjórn í Egilsstaðaskóla.