Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs boðar til kynningafunda

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs mun kynna starfið á næstu dögum og verða kynningarfundir haldnir víðsvegar um landið á næstu vikum.
Markmið með starfi samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs er að slíkt starf fari fram í öruggu umhverfi og að börn, unglingar og fullorðnir, óháð kynferði eða stöðu að öðru leyti, geti stundað öruggt íþrótta- eða æskulýðsstarf. Þau geti leitað sér aðstoðar eða réttar sína án þess að þurfa að óttast afleiðingarnar. Með atvikum og misgerðum er átt við andlegt, líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi og áreitni, einelti og önnur sambærileg tilvik.
Í október og nóvember næstkomandi mun samskiptaráðgjafi ferðast um landið og kynna starfsemina fyrir íþrótta- og æskulýðsfélögum.
Dagskráin:
- Kynning á starfi samskiptaráðgjafa.
- Kynning á öflun upplýsinga úr sakaskrá.
- Kynning á vinnu við samræmingu viðbragðsáætlana vegna atvika og misgerða.
Óskað er eftir því að fulltrúar félaga ásamt starfsmönnum, leiðbeinendum eða þjálfurum félaga mæti á fundina. Í kjölfar kynningar verður útbúið efni sem félög geta nýtt sér til að upplýsa starfsfólk og iðkendur.
Kynningarnar verða á eftirtöldum stöðum og dagsetningum:
- Akureyri fimmtudaginn 14. október. Háskólinn á Akureyri, hátíðarsalur kl.18:30
- Húsavík föstudaginn 15. október. Fosshótel Húsavík kl.16:30
- Höfn í Hornafirði miðvikudaginn 20. október. Nýheimar fræðslusetur kl.20:00
- Egilsstaðir fimmtudaginn 21. október. Menntaskólinn á Egilsstöðum kl.17:00
- Selfoss miðvikudaginn 27. október. Fjölbrautaskóli Suðurlands, hátíðarsalur kl.17:30
- Reykjanesbær fimmtudaginn 28. október. Íþróttaakademían í Reykjanesbæ kl.18:00
- Borgarnes þriðjudaginn 2. nóvember. Menntaskóli Borgarfjarðar, Hjálmaklettur kl.18:00
- Ísafjörður miðvikudaginn 3. nóvember. Stjórnsýsluhúsið kl.18:00
- Kópavogur mánudaginn 8. nóvember. Kórinn kl.17:00
- Reykjavík mánudaginn 15. nóvember. ÍSÍ Engjavegi 6, Fundarsalur E kl.17:00
- Reykjavík þriðjudaginn 16. nóvember. ÍSÍ Engjavegi 6, Fundarsalur E kl.13:00
- Reykjavík miðvikudaginn 17. nóvember. ÍSÍ Engjavegi 6, Fundarsalur E kl.19:00
- Hafnarfjörður miðvikudaginn 24. nóvember. Kaplakriki, Sjónarhóll salur kl.17:00
UMFÍ hvetur sambandsaðila og aðildarfélög þeirra til að mæta á kynningarfundina um allt land.
Frekari upplýsingar á heimasíðu samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.