Fara á efnissvæði
15. desember 2022

Samstarf þriggja ráðuneyta og íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar

Þeir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu um verkefnið „Farsælt samfélag fyrir öll – brúum bilið“. Verkefnið miðar að því að efla íþróttaástundun fatlaðs fólks, ekki síst barna og ungmenna með fatlanir.

Alls verður 60 milljónum króna veitt til verkefnisins sem er til þriggja ára.

Markmiðið er að öll börn og ungmenni eigi möguleika á að taka þátt í íþróttum í samræmi við óskir þeirra og þarfir. Áhersla er á að fötluðum börnum og ungmennum verði til að mynda gert kleift að stunda íþróttir með ófötluðum börnum kjósi þau svo. Verkefnið er liður í að ná þeim markmiðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem varða þátttöku fatlaðs fólks í íþróttastarfi, að því er fram kemur fram í samningnum og tilkynningu frá ráðuneytunum.

Aðgerðirnar sem ráðist verður í byggja á tillögum sem fram komu á ráðstefnunni „Farsælt samfélag fyrir öll – tækifæri barna og ungmenna í íþróttastarfi“.

Um 200 manns tóku þátt og fjöldi hugmynda varð til. Aðgerðaáætlun var í kjölfarið unnin um fulla þátttöku og virkni fatlaðs fólks á forsendum eigin getu.

Á meðal næstu skrefa eftir undirritunina er að ráða til starfa verkefnastjóra sem mun vinna að framgangi aðgerðanna og eiga í samstarfi við sveitarfélög og íþróttafélög um land allt, auk fulltrúa félagsþjónustu, skóla, sérsambanda ÍSÍ, íþróttahéraða innan ÍSÍ og UMFÍ og fjölda annarra sem tengjast verkefninu.

Einnig verða veittir styrkir og aðstoð við þróun sprotaverkefna í íþróttastarfi sem hafa þann tilgang að efla nýsköpun og styrkja við góðar fyrirmyndir þannig að markmið verkefnisins nái fram að ganga.

Viðstaddir undirritunina í morgun voru auk ráðherranna þriggja fulltrúar íþróttahreyfingarinnar, þar á meðal þeir Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, og Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, og Auður Ingi Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, Þórður Árni Hjaltested, formaður Íþróttasambands fatlaðra, og Anna Karólína Vilhjálmsdóttir og Jón Björn Ólafsson frá Íþróttasambandi fatlaðra auk fleiri sem tengjast samningnum.

Á myndunum með fréttinni má sjá ráðherrana þrjá undirrita samninginn, hópinn allan og síðan fulltrúa íþróttahreyfingarinnar á viðburðinum auk einnar myndar af þeim Önnu Karólínu frá Íþróttasambandi fatlaðra, Þór G. Þórarinssyni, sérfræðingi hjá félags- vinnumarksráðuneytinu, og Önnu Láru Steindal, verkefnastjóra hjá Þroskahjálp.