Fara á efnissvæði
12. október 2019

Samþykkt að veita íþróttabandalögum aðild að UMFÍ

Fulltrúar sambandsaðila UMFÍ samþykktu á sambandsþingi UMFÍ síðdegis í dag með nær öllum atkvæðum umsókn íþróttabandalaga að UMFÍ. Við inngönguna fá íþróttabandalögin stöðu sambandsaðila innan UMFÍ.

Þau íþróttabandalög sem hafa staðfest umsókn sína eru Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR), Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) og Íþróttabandalag Akraness (ÍA). 

Íþróttabandalögin þrjú eru boðin velkomin í hóp UMFÍ.

„Hreyfingin verður öflugri við þetta. Við horfum til framtíðar. Nú getum við sameinað krafta okkar og orðið öflugri samtök en áður,‟ segir Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ.

Ingvar Sverrisson, formaður ÍBR, segir þetta frábæra niðurstöðu á þinginu: „Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að þetta sé leiðin að árangri. Ég hlakka mikið til að vinna með öllu þessu frábæra fólki í ungmennafélagshreyfingunni og læra af þeim. Saman getum við eflt íþrótta- og æskulýðsstarf í landinu.‟

Sambandsþing UMFÍ fer fram á Laugarbakka í Miðfirði um helgina. Þar eru staddir yfir 100 fulltrúar allra 29 sambandsaðila UMFÍ um allt land.

 

Eftir samþykktina

 

Sjá meira: UMFÍ verður öflugra landssamband