Fara á efnissvæði
22. janúar 2018

Sema Erla: Fólk vill vita hvernig á að bregðast við ofbeldi

Það fyrsta sem Sema Erla Serdar gerði, þegar hún hóf störf hjá Æskulýðsvettvanginum, var að fara á námskeiðið Verndum þau. Námskeiðin eru fyrir þjálfara, sjálfboðaliða og starfsfólk íþrótta- og æskulýðsfélaga.

„Áhugi á námskeiðum Æskulýðsvettvangsins er að aukast. Æ fleiri óska eftir fræðslu um kynferðisofbeldi og einelti og aðgerðir gegn þeim hjá okkur. Það er gott að finna fyrir því að fólk sem vinnur með börnum og ungmennum er meðvitað um skyldur sínar og ábyrgð og vill fræðast um málin,“ segir Sema Erla Serdar, verkefnastýra Æskulýðsvettvangsins. Hún er önnum kafin þessa dagana við að bóka á námskeið vettvangsins um fræðslu í barnaverndarmálum. Námskeiðið heitir Verndum þau.

Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsvettvangur UMFÍ, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Vettvangurinn var formlega stofnaður sumarið 2012.

Æskulýðsvettvangurinn vinnur að sameiginlegum hagsmunamálum barna og ungmenna. Tilgangur hans og markmið er að stuðla að samræðu og samstarfi aðildarfélaganna á sviði leiðtogaþjálfunar, fræðslu- og forvarnamála, útbreiðslu og kynningar sem og á öðrum sviðum eftir því sem þurfa þykir. Æskulýðsvettvangurinn hefur frá stofnun staðið fyrir námskeiðum, ráðstefnum og öðrum sameiginlegum verkefnum sem lúta að hagsmunum barna og ungmenna.

 

400 manns á námskeiði um ofbeldi

Sema Erla hóf störf hjá Æskulýðsvettvanginum fyrir um ári. Það fyrsta sem hún gerði var að fara á námskeiðið Verndum þau. Umsjónarmenn námskeiðsins eru höfundar samnefndrar bókar.

Sema segir námskeiðið skila miklum árangri: „Fræðslan skilar sér í heilbrigðara og öruggara starfsumhverfi. Þegar starfsfólk og sjálfboðaliðar eru meðvituð um einkenni ofbeldis gegn börnum og ungmennum og veit hvernig það á að bregðast við slíku eru hagsmunir barna og ungmenna tryggðir. „Það er ofar öllu,“ segir Sema.

Sema segir mikla vitundarvakningu vera í samfélaginu gagnvart ofbeldi í ýmsum myndum. Á þessu ári hafi um 400 einstaklingar setið námskeiðin Verndum þau. Gera má ráð fyrir sambærilegum eða meiri fjölda á næsta ári og það er fagnaðarefni, segir hún.

Sema bendir á að þegar grunur vakni um einelti, kynferðisofbeldi eða aðra óæskilega hegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi séu verkferlar mjög skýrir. Slíkt vanti á mörgum öðrum sviðum samfélagsins.

„Það er grundvallaratriði að hafa skýra verkferla því að þá vitum við alltaf hvernig á að bregðast við þegar svona mál koma upp,“ segir hún. „Verkfærin eru til staðar, þolendur og gerendur fá nauðsynlega aðstoð, málunum er ávallt komið strax í réttan farveg og þau eru leyst.“

 

Hatursorðræðan

Æskulýðsvettvangurinn stóð í september s.l. fyrir ráðstefnu um hatursorðræðu í íslensku samfélagi. Um 100 manns mættu á ráðstefnuna og vakti hún mikla athygli í fjölmiðlum, ekki síst hjartnæm saga knattspyrnumannsins Pape Mamadou Faye, framherja Víkings í Ólafsvík, um kynþáttahatur og misrétti sem hann hefur orðið fyrir.

Á að halda aðra ráðstefnu um hatursorðsræðu?

Sema segir það óvíst. „Þetta vandamál er það stórt að það þarf að fá stjórnvöld, yfirvöld, fjölmiðla og almenning til samstarfs. Það þarf fræðslu, stefnumótunarvinnu og aukið fé í fræðslu og forvarnir svo að hægt sé að auka þekkingu og vitund um hatursorðræðu og alvarlegar afleiðingar hennar,“ segir Sema og bætir við að skaðsemi hatursorðræðu felist m.a. í því að með henni sé með markvissum hætti verið að brjóta einstaklinga niður.

Sema segir að verið sé að skoða næstu skref. Hún bendir á að alltaf sé hægt að leita til Æskulýðsvettvangsins og fá fræðslu um málið, um það hvað hatursorðræða sé og hvaða alvarlegu afleiðingar hún geti haft.

 

Viðtalið við Semu birtist í síðasta tölublaði Skinfaxa.

Þú getur smellt hér og lesið Skinfaxa

 

Heimasíða Æskulýðsvettvangsins

Tilkynna um einelti eða aðra óæskilega hegðun