Fara á efnissvæði
11. febrúar 2021

Sema hjá Æskulýðsvettvanginum: Mæta ofbeldi með fræðslu

„Í frítímastarfi geta komið upp ýmis atvik og börn geta líka komið inn í slíkt starf sem þolendur of beldis. Stundum greina börn frá ofbeldi og þá skiptir sköpum að rétt sé brugðist við, annars er hætta á að barnið vilji ekki segja aftur frá,“ segir Sema Erla Serdar, framkvæmdastýra Æskulýðsvettvangsins.

Rætt er við Semu í Fréttablaðinu í dag í tilefni af því að 112-dagurinn er í dag. Þetta er 16. skiptið sem hann er haldinn. Á þessum degi er sjónum beint að öryggi og velferð barna og ungmenna.

Þetta er gert meðal annars á samfélagsmiðlum og í 112-blaðinu sem fylgir Fréttablaðinu í dag.

 

Umhverfið verði sem öruggast

Æskulýðsvettvangurinn býður upp á fræðslu um ólíkar birtingarmyndir ofbeldis og getur stigið inn í sem óháður aðili til að aðstoða við að leysa úr ofbeldismálum sem tengjast börnum. Æskulýðsvettvangurinn leggur áherslu á að þeir sem starfa með börnum og ungmennum séu meðvitaðir um sínar skyldur og ábyrgð svo umhverfið sé sem öruggast.

Sema segir mikilvægt að greina frá ofbeldisbrotum bæði svo hægt sé að reyna að koma í veg fyrir mál sem kunna að koma upp, svo sem einelti, kynferðisbrot, agabrot og fleira, og líka svo að það séu leiðir til að fá úrlausn mála með einföldum hætti þegar slík atvik koma upp.

 

 

„Við gerum þetta með fræðslu fyrir þá sem starfa með börnum og ungmennum um birtingarmyndir of beldis, eineltis og vanrækslu og leggjum mikla áherslu á að fólk geti borið kennsl á vísbendingarnar og þekki leiðir til úrlausnar,“ segir hún.

„Við leggjum einnig áherslu á hvernig á að hátta samskiptum milli ungra iðkenda og fullorðinna, en samskiptaleiðir hafa breyst og það virðist hafa færst í aukana að þau séu óviðeigandi eða að minnsta kosti á gráu svæði. Við bregðumst við því með skýrum siðareglum um samskipti. Við höfum líka þróað netnámskeið í barnavernd í samstarfi við fagaðila,“ segir Sema. „Það er mikilvægt að nýta það og það er öllum aðgengilegt ókeypis á vefnum okkar.“

Koma málum í farveg

Sema segir Æskulýðsvettvanginn með mjög vandaða viðbragðsáætlun með mjög skýrum ferlum.

„Við komum inn sem óháður aðili og aðstoðum við að leysa úr málum. Stundum er nóg að ræða við fólk, en stundum þarf að tilkynna mál til barnaverndar og jafnvel lögreglu. Við komum málum þá í ferli hjá yfirvöldum og höfum svo ekki frekari afskipti nema þess sé óskað af hálfu yfirvalda og til þess að hlúa að aðilum máls,“ segir hún.

 

Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsvettvangur Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Ungmennafélags Íslands. Þessir aðilar vinna að sameiginlegum hagsmunum barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi og stuðla að uppbyggilegum, vönduðum og öruggum aðstæðum í slíku starfi.

Á heimasíðu Æskulýðsvettvangsins, www.aev.is, eru alls kyns upplýsingar og verkfæri og hægt að tilkynna óæskilega hegðun. Netnámskeiðið í barnavernd er aðgengilegt hér: https://namskeid.aev.is/.

 

Samskiptaráðgjafi í íþrótta- og æskulýðsstarfi

UMFÍ bendir jafnframt á samkiptaráðgjafann, www.samskiptaradgjafi.is.

Markmiðið með starfsemi Samskiptaráðgjafa er að stuðla að því að íþrótta- og æskulýðsstarf fari fram í öruggu umhverfi og að börn, unglingar og fullorðnir, óháð kynferði eða stöðu að öðru leyti, geti stundað íþróttir eða æskulýðsstarf og leitað sér aðstoðar eða leitað réttar síns vegna atvika og misgerða sem eiga sér stað án þess að þurfa að óttast afleiðingarnar.

 

 

Starfssvið samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs nær til skipulagðrar starfsemi á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Ungmennafélags Íslands, æskulýðssamtaka sem starfa á grundvelli æskulýðslaga og aðila sem gera samning við Mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Það þýðir að allir sem sækja skipulagðar æfingar eða félagsstarf hjá skátunum, KFUM og KFUK, LUF, íþróttafélögum eða bandalögum sem tilheyra UMFÍ og/eða ÍSÍ, geta leitað til samskiptaráðgjafa varðandi einelti eða ofbeldi sem þeir telja sig hafa orðið fyrir í sínu íþrótta- eða æskulýðsstarfi.