29. júlí 2022
Setning Unglingalandsmóts UMFÍ í kvöld
![](/media/cljcjzw2/borgarnes2016.jpg?width=400&height=400&v=1d9a9d6dbf062c0 1x)
Minnum á: Unglingalandsmót UMFÍ verður sett á Selfossvelli klukkan 20:00 í kvöld.
Æskilegt er að allir þátttakendur mæti á mótssetninguna og gangi inn á mótssvæðið með öðrum þátttakendum. Á setningunni verður mikið fjör, tónlist og dans og skemmtileg atriði. Þeir Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Ásmundir Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, verða viðstaddir setninguna ásamt öðru góðu fólki.
Mæting er á gervigrasvöllinn á Selfossvelli klukkan 19:30.
Allir eru hjartanlega velkomnir á mótssetninguna, þátttakendur, foreldrar, systkini, afar og ömmur og frændur og frænkur sem vilja vera í góðum félagsskap.