Fara á efnissvæði
10. nóvember 2023

Síðasti séns til að komast í nefnd

Hefurðu áhuga á sérstökum málum í starfsemi UMFÍ? Nú er tækifærið til að koma þínu á framfæri. Þú getur fengið eða tilnefnt einhverja í eina af nefndum UMFÍ. Frestur til að gera það rennur út á hádegi í dag, föstudaginn 10. nóvember.

Fólk í nefndum hefur áhrif á margt í starfi UMFÍ.  

Fólk sem sæti á í nefndum getur haft áhrif á starf UMFÍ á vettvangi nefndarstarfsins, mótað viðburði og mót, umgjörð um starf skólabúða, heiðursviðurkenningar og margt, margt fleira.
 

Nefndirnar eru eftirfarandi:

  • Fjárhagsnefnd.
  • Fræðslu- og sjóðanefnd.
  • Heiðursráð.
  • Laganefnd.
  • Móta- og viðburðanefnd.
  • Skólabúðanefnd.
  • Ungmennaráð (sjá má mynd af ráðinu hér að neðan).
  • Upplýsinga- og tækninefnd.
  • Útgáfu- og kynningarnefnd.