31. október 2023
Síðasti séns til að sækja um í Fræðslu- og verkefnasjóð
![](/media/pohf51co/5o6a3139.jpg?width=400&height=400&v=1da0be56d4362c0 1x)
Við bendum á að enn er opið fyrir umsóknir í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ. Hægt er að senda inn umsóknir í sjóðinn til morgundagsins, 1. nóvember 2023. Markmið sjóðsins er að styrkja félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar í samræmi við stefnu UMFÍ, m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun í félagsmálum og félagsstarfi.
Rétt til umsóknar eiga sambandsaðilar UMFÍ, aðildarfélög sem eru virk í starfi og deildir innan þeirra. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ rétt á að sækja um styrk úr sjóðunum.