Fara á efnissvæði
25. júní 2018

Sigríður segir allt að verða klárt fyrir Landsmótið á Sauðárkróki

„Við vorum að taka nýja gervigrasið á fótboltavellinum í notkun og erum að gera fleira klárt,“ segir Sigríður Svavarsdóttir, formaður framkvæmdanefndar Landsmótsins sem vinnur að því þessa dagana að undirbúa Landsmótið á Sauðárkróki 12. - 15. júlí.

Landsmótið fer fram um allan Sauðárkrók í júlí og verður mikið um að vera í bænum.

Landsmótið er íþróttaveisla og meira en 30 greinar í boði. Þar á meðal eru nýjungar á borð við krolf, biathlon, boccía, ringó, hjólaskíðaganga, strandhandbolti og margt fleira. 

Sigríður brá á leik með þeim Ingibjörgu Klöru Helgadóttur, formanni Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS) og Þorvaldi Gröndal, frístundastjóra Skagafjarðar á körfuboltavellinum framan við Ársskóla á Sauðárkróki í dag. 

Sigríður segir heilmikið fjör verða á Landsmótinu og bíður spennt eftir því. 

Ertu búin/n að skrá þig?

Meiri upplýsingar og skráning á www.landsmotid.is