Fara á efnissvæði
29. júní 2019

Sigrún sigraði í pönnukökubakstri

Sigrún Steinsdóttir frá Dölum í Fáskrúðsfirði fór í dag með sigur af hólmi í keppni í pönnukökubakstri á Landsmóti UMFÍ 50+ sem fram fer í Neskaupstað um helgina. Þar með velti hún Ingibjörgu Helgu Guðmundsdóttur frá Selfossi úr sessi. 

Fáskrúðsfirðingar voru sigursælir í pönnukökubakstrinum en Ingigerður Jónsdóttir frá Eyri í Fáskrúðsfirði fékk bronsverðlaun. 

„Ég nálgaðist keppnina eins og ég væri að baka í eldhúsinu heima hjá mér, nema ég var aðeins að flýta mér,“ segir Sigrún í viðtali við Austurfrétt.

„Ég er búin að baka ofan í marga um dagana og hef þróað tækni mína í gegnum árin. Við skiptumst á að baka fyrir sólarkaffi Leiknis en ég hef aldrei keppt í pönnukökubakstri.“

Að ýmsu er að hyggja í keppni í pönnukökubakstri. Keppendur hafa 20 mínútur til að gera deigið og baka 20 pönnukökur. Tíu á að skila upprúlluðum með sykru og tíu brotnum horn í horn.

Þá taka dómarar tillit til umgengi á vinnusvæði meðan bakað er, frágangi á svæðinu og á pönnukökunum á fati, vinnubrögðum, útliti pönnukakanna þannig þær séu svipaðar í útliti og ekki brenndar og síðast, en ekki síst, bragðgæðum.

„Þetta er ekki bara hraðinn. Hitinn á pönnunni hefur líka mikið að segja. Við vorum með ágætar hellur hér og frábæra aðstöðu,“ segir Sigrún.

 

Hér má sjá myndir frá keppni í pönnukökubakstri sem Gunnar Gunnarsson tók.