Fara á efnissvæði
26. janúar 2021

Sigrún Sjöfn: Íþrótta- og tómstundastyrkir fyrir börn sem geta ekki stundað áhugamál sitt

„Ég er mjög spennt fyrir þessu verkefni og bind vonir við og vil trúa að það komi að notum fyrir efnaminni fjölskyldur og að þær geti nýtt sér þennan möguleika. Þetta er flókið ferli og því þurfum við að finna leiðir til að einfalda það. Málefnið er þarft, sérstaklega fyrir þau börn sem geta í raun ekki stundað sitt áhugamál út af margvíslegum aðstæðum heima fyrir,“ segir Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, sem ráðin hefur verið verkefnastjóri í félagsmálaráðuneytinu til þess að hafa umsjón með sérstökum íþrótta- og tómstundarstyrkjum, sem börn af efnaminni heimilum eiga rétt á. Ráðningin er tímabundin næstu sjö mánuði. 

Verkefnið, styrkirnir og ráðning Sigrúnar Sjafnar, er hluti af aðgerðarpakka stjórnvalda til þess að bregðast við áhrifum Covid-19 faraldursins á fjölskyldur og heimili landsins.

 

Tímamótaverkefni

Þetta er í fyrsta sinn sem ráðuneytið ræðst í aðgerð sem þessa á erfiðum tímum. Sigrún mun m.a. taka saman reynsluna og árangurinn af íþrótta- og tómstundastyrkjunum og er lagt upp með að reynslan og þekkingin sem safnast saman geti orðið grunnur að raunverulegum kerfisbreytingum í þessum málum.

 

 

Jafnframt er gert ráð fyrir að verkefnastjóri hitti sveitarfélög, forsvarsmenn íþróttafélaga og aðra sem hafa beina aðkomu að verkefninu og mun Sigrún Sjöfn taka saman þau gögn sem verða notuð í frekari vinnu.

Samhliða þessu hefur verið stofnaður stýrihópur með fulltrúum frá félagsmálaráðuneytinu, menntamálaráðuneytinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Íþróttasambandi fatlaðra, UMFÍ og ÍSÍ og er Sigrún Sjöfn starfsmaður stýrihópsins.

 

 

„Þetta er mjög þarft málefni. Ég er sjálf alin upp í kringum íþróttir. Þótt ég hafi alltaf fengið stuðninginn heima, þá veit ég að í kringum mig voru því miður einstaklingar sem hefðu líka þurft á honum að halda. Ég veit að við náum aldrei til allra. En við þurfum að finna leiðir til framtíðar og fólkið sem þarf á styrkjunum að halda svo börnin geti stundað íþróttir og fleiri tómstundir í skipulögðu starfi,“ segir Sigrún, sem er með fjölbreytta reynslu og menntun á sviði íþrótta og fræðslumála ungmenna.

 

Landsliðskona með lögreglupróf

Sigrún hefur starfað hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu síðustu ár en hún útskrifaðist sem lögreglumaður frá Háskólanum á Akureyri árið 2020. Sigrún er með MLM gráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst og B.Ed. í grunnskólakennslu frá Háskóla Íslands. Sigrún Sjöfn situr jafnframt í sveitarstjórn Borgarbyggðar á yfirstandandi kjörtímabili.

Sigrún hefur lengi verið ein fremsta körfuknattleikskona landsins og hefur mikla reynslu af þjálfun yngri flokka hjá nokkrum félagsliðum. Hún er fyrirliði körfuboltaliðs Skallagríms í Borgarnesi ásamt því að spila fyrir A-landslið Íslands. Þá lék Sigrún Sjöfn sem atvinnumaður í Frakklandi og í Svíþjóð.