Sigurður frá UMSB með erindi á ráðstefnu Sýnum karakter
„Ég held að verkfærakista Sýnum karakter skili okkur betra fólki út í samfélagið. Ef vel tekst til fá krakkarnir betra sjálfstraust í íþróttum og læra að vinna áfram með það. Ef við fáum enn betri einstaklinga út úr þessu af því að þjálfararnir eru meðvitaðir um það hvernig þeir eiga að laða það besta fram úr iðkendum sínum þá hefur okkur tekist verkið,“ segir Sigurður Guðmundsson, Framkvæmdastjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB). Þar á bæ hefur hafist innleiðing á verkfærakistu verkefnisins Sýnum karakter í starfi félagsins. Nokkur ungmenna- og íþróttafélög vinna um þessar mundir að innleiðingu verkfærakistunnar.
Sigurður segir hlutverk héraðssambanda að styðja við aðildarfélög sín, þjálfara og iðkendur og kynna til sögunnar nýjungar sem geti gagnast starfinu. Hann segir verkfærakistu Sýnum karakter geta verið einn af lyklunum að því að gera gott félag betra, það gangi þvert í gegnum deildir og sameini bæði þjálfara og iðkendur.
Sýnum karakter bætir félögin
„Öll félög og allar deildir UMSB hafa verið að vinna eftir sömu markmiðum í september. Fyrsti liðurinn úr verkefninu sem við vinnum með er áhugahvöt. Síðar munum við snúa okkur að markmiðasetningu og öðrum þáttum. Ég sendi efni á þjálfara, þeir vinna eftir því og síðan fundum við öll saman ásamt kennurum skólanna um málið á starfsdegi í október,“ segir Sigurður. Hann er fullviss um að séu tólin úr verkfærakistu Sýnum karakter innleidd á markvissan hátt í starf félagsins þá geti það haft jákvæð áhrif á iðkendum í öllum deildum og þeir fengið við það hæfni sem þeir geti nýtt sér í daglegu lífi.
Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað karakter?
Sigurður verður á meðal fyrirlesara á ráðstefnu Sýnum karakter í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 5. október. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða eyðilagt karakter? Dagskráin er fjölbreytt og áhugaverð og verða þar flutt erindi um það hvernig hægt er að virkja og byggja upp karakter hjá börnum og ungmennum.
Á ráðstefnunni mun dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur og hugmyndasmiður Sýnum karakter fjalla um hugmyndir og hindranir karaktera, Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikasambands Íslands, fjalla um nýtt mótafyrirkomulag í áhaldafimleikum og Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, fréttamaður og móðir fatlaðs íþróttamanns, fjalla um gildi íþrótta fyrir hann og aðra. En þetta er aðeins brot af fyrirlesurunum.
Ráðstefnustjóri er enginn annar en körfuboltasnillingurinn og fyrirlesarinn Pálmar Ragnarsson.
Starfsfólk og sjálfboðaliðar innan íþrótta og ungmennafélagshreyfingarinnar er hvatt til að mæta á ráðstefnuna. Vert er að geta þess að uppselt hefur verið á allar fyrri ráðstefnur og því um að gera að tryggja sér sæti.
Ráðstefna Sýnum karakter um það hvernig keppnisfyrirkomulag getur mótað og eyðilagt karakter verður í Háskólanum í Reykjavík, laugardaginn 5. október á milli klukkan 9:30 – 13:00. Miðaverð er 2.500 krónur.
Meira um ráðstefnuna og skráning