Fara á efnissvæði
28. desember 2020

Sjálfboðaliðar endurnýja skíðasvæði Mývetninga

Félagar í Ungmennafélaginu Mývetningi lögðu hönd á plóg í byrjun vetrar og hófu að gera við skíðalyftu sem hafði legið óhreyfð í fimm ár. Markmiðið er að halda upp á 20 ára afmæli lyftunnar í vor. Allt verkið er unnið í sjálfboðavinnu.

„Við erum hér vaskur hópur fólks við að koma skíðasvæðinu í gagnið,“ segir Anton Freyr Birgisson þar sem hann hangir utan á einu af átta möstrum skíðalyftunnar við Mývatn þegar rætt er við hann.

Hann, eins og nærri allir í ferðaþjónustugeiranum á Íslandi, hafði lítið að gera eftir að ferðamennska lagðist nánast af þegar COVID-faraldurinn æddi yfir heimsbyggðina. Anton Freyr hefur síðastliðin 12 ár verið á fullu í ferðaþjónustugeiranum, nú síðast hjá ferðaskrifstofunni GeoTravel Iceland sem sérhæfir sig í jeppa- og vélsleðaferðum. En nú er lítið um að vera. Ferðaþjónustan er sérlega stór atvinnugrein í Mývatnssveit og því eru ýmsir í sömu sporum og Anton.

Anton og fleiri eru að taka allt skíðasvæðið í gegn. Búinn var til hópur á Facebook sem tengir fólkið saman. Alla jafna eru um 15–20 manns virkir í viðhaldinu.

Antoni telst til að verkið hafi tekið samtals 400 vinnustundir.

„Allir eiga sér hlutverk. Við erum búin að laga skíðaskálann, setja upp innréttingu svo að hægt er hita kaffi og hafa það notalegt í honum. Síðan erum við með troðara til að troða skíðabrekkuna og gönguskíðabrautirnar, “ segir hann en bætir við, að framkvæmdirnar hefðu aldrei orðið að veruleika án öflugra bakhjarla, sveitarfélagsins Skútustaðahrepps og fyrirtækja í kring sem hafi stutt við starfið.

Anton segir allt tengt skíðasvæðinu unnið í sjálfboðavinnu og ungmennafélagsandinn sé leiðarljós í allri vinnunni. „Heilsuspillandi þjónustulund og sjúkleg bjartsýni einkennir fólk í ferðaþjónustu. Við sjáum alltaf tækifærin. Nú gafst tækifæri til að sinna börnunum sínum og samfélaginu. Þetta er tækifæri sem við fáum aldrei aftur og við gripum það auðvitað. Ungmennafélagsandinn er allsráðandi,“ segir hann og bendir á að nærri allt efni, sem til þurfti til verksins, hafi verið gefið.

 

Fengu skíðalyftu gefins

Skíðaiðkun Mývetninga er rótgróin og vel þekkt. Skíðalyfta var hins vegar ekki á svæðinu um síðustu aldamót. Þorvaldur nokkur Þorsteinsson var þá nýfluttur austur yfir frá Siglufirði og honum fannst lyftuleysið í brekkunum ótækt. Þegar hann frétti af því að verið væri að rífa skíðalyftu Ármanns í Bláfjöllum, seint á tíunda áratug síðustu aldar, hafði hann samband við rétta aðila og fékk lyftuna gefins. Haldið var suður og komið með skíðalyftuna í bútum norður á flutningabílum.

„Það átti að henda lyftunni upp á einni helgi. En fólki leist sannast sagna ekki á blikuna þegar haugnum var sturtað á bílastæðið. Samt var farið í að gera og græja, stytta og laga lyftuna að skíðasvæði Mývetninga,“ segir Anton.

Rúmlega tæplega tvö þúsund vinnustundum síðar var skíðalyftan komin upp. Hún var tekin formlega í notkun veturinn 2001.

Árið 2021 verða sumsé liðin 20 ár síðan gamla skíðalyfta Ármenninga var reist við Mývatn. Töluvert er farið að sjá á henni og hefur hún ekki verið í notkun síðastliðin fimm ár. Var svo komið að Vinnueftirlitið setti rekstraraðilum skíðasvæðisins afarkosti: Annaðhvort yrði stólalyftan endurnýjuð eða rifin.

Seinni kosturinn varð ofan á.

Anton segir endurbæturnar á lyftunni núna heilmiklar. Þegar hlutir eru teknir úr henni eru þeir lagaðir og málaðir, allur öryggisbúnaður endurnýjaður og margt er á sömu lund. Framkvæmdaaðilar eru jafnframt í góðu sambandi við framleiðandann, franska fyrirtækið Poma, ef redda þarf varahlutum. Stefnt er að því að skíðasvæðið verði tekið í notkun á næsta ári þegar 20 ár verða liðin frá því að eftirlitsaðilar gáfu ungmennafélaginu leyfi til að keyra lyftuna í fyrsta sinn.

„Þetta verður gaman. Ég á líka ung börn og mun nota skíðasvæðið næstu árin,“ segir Anton að lokum.

 

Ungmennafélag Mývetninga er aðildarfélag Héraðssambands Þingeyinga (HSÞ), eins af sambandsaðilum UMFÍ.

Viðtalið allt og umfjöllunin eru í nýjasta tölublaði Skinfaxa, tímariti UMFÍ. Blaðið er hægt að lesa á vef UMFÍ: www.umfi.is

Lesa blaðið: Skinfaxi 3. tbl 2020