29. júlí 2022
Skemmtiskokk fyrir alla!
![](/media/at0bkyx1/hellisskogur.jpg?width=400&height=400&v=1d9a9d6df8151b0 1x)
Fjölbreytt afþreying og hreyfing er í boði fyrir alla fjölskylduna á Unglingalandsmóti sem fram fer um helgina.
Á morgun, laugardaginn 30. júlí, eru allir áhugasamir hvattir til þess að taka þátt í laufléttu og skemmtilegu skemmtiskokki sem fram fer í Hellisskógi. Hellisskógur er skemmtilegt útivistarsvæði vestan við Ölfusá á Selfossi. Hægt er að velja um 2 km hring eða 3,5 km hring, en að sjálfsögðu er hægt að hlaupa bæði styttra og lengra. Sjálfboðaliðar frá UMFÍ verða á staðnum til hvatningar og halds og traust.
Skokkið hefst klukkan 13:00 og stendur til klukkan 14:00.
Sjáumst í Hellisskógi!