Fara á efnissvæði
13. janúar 2020

Skrifað undir samning við Domus Mentis

„Það er afar mikilvægt að tryggja framvindu þessa máls og ánægjulegt að við getum með markvissari hætti en áður stuðlað að auknu öryggi iðkenda. Samfélagið okkar er að ganga í gegnum vitundarvakningu um málefni sem tengjast kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun. Það er okkar markmið að tryggja að allir njóti verndar í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

Í dag skrifaði hún undir samstarfssamning ráðuneytisins við Domus Mentis – Geðheilsustöð í samræmi við ný lög um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Lögin heimila ráðherra að fela þriðja aðila að sinna hlutverki samskiptaráðgjafa og á þeim grundvelli var ráðist í útboð á þjónustunni. Þrír aðilar sóttust eftir því að annast ráðgjöfina og að loknu formlegu mati var Domus Mentis – Geðheilsustöð talin hæfust.

Lögin byggja á tillögum starfshóps mennta- og menningarmálaráðherra um aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, átti sæti í starfshópnum. Hún var viðstödd undirritunina ásamt Semu Erlu Serdar, framkvæmdastýru Æskulýðsvettvangsins, sem UMFÍ á aðild að. 

Samskiptaráðgjafanum er meðal annars ætlað að leiðbeina einstaklingum sem til hans leita vegna atvika eða misgerða sem orðið hafa í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi sem varða til dæmis einelti, ofbeldi eða kynbundna eða kynferðislega áreitni. Þá mun ráðgjafinn einnig veita íþrótta- og æskulýðsfélögum og -samtökum fræðslu og ráðgjöf.

Fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu að Domus Mentis veitir einstaklingum, fjölskyldum, fyrirtækjum og stofnunum víðtæka þjónustu sem stuðlar að bættri líðan og geðheilsu fólks. Hjá fyrirtækinu starfar fagfólk með breiða þekkingu á félags- heilbrigðis- og réttarvörslukerfinu, sálfræði, geðlæknisfræði, hjúkrunar- og kynfræði og félagsráðgjöf.

Fyrirhugað er að ráðið verði í stöðu samskiptaráðgjafans á næstunni og viðkomandi hefji formlega störf í næsta mánuði. Þá er einnig ráðgert að opnaður verði fræðsluvefur um hlutverk ráðgjafans og verksvið.

 

Á myndinni hér að ofan má sjá Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, ásamt forsvarsfólki Domus Mentis – Geðheilsustöð, starfsfólki ráðuneytisins og gestum við undirritun samningsins. Á neðri myndinni er ráðherra ásamt forsvarskonum Domus Mentis – Geðheilsustöð.