Slakari reglur um sóttkví
Breytingar verða á reglum á sóttkví á miðnætti í kvöld, aðfaranótt 26. janúar 2022.
Einstaklingar sem eru útsettir fyrir COVID-19 smiti utan heimilis eða dvalarstaðar síns verður frá og með morgundeginum ekki lengur skylt að fara í sóttkví. Þeir þurfa þess í stað að viðhafa smitgát. Sóttkví verður áfram beitt gagnvart þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti innan heimilis eða dvalarstaðar en þríbólusettir sem útsettir eru á heimili geta verið í smitgát sem lýkur með sýnatöku. Börn á leik- og grunnskólaaldri verða enn fremur undanþegin smitgát. Fram kemur á vef stjórnarráðsins að breytingar á reglum um sóttkví eru gerðar í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.
Í minnisblaði hans til heilbrigðisráðherra kemur fram að ómíkron-afbrigði kórónaveirunnar sé uppistaðan í þeim mikla fjölda smita sem nú greinast eða í rúmlega 90% tilvika, en delta-afbrigðið í tæplega 10%. Faraldurinn nú sé um margt frábrugðinn því sem verið hefur. Ómíkron-afbrigðið er mun meira smitandi en delta-afbrigðið en veldur sjaldnar alvarlegum veikindum.
Þá kemur fram í minnisblaði sóttvarnalæknis að núverandi reglur um sóttkví og einangrun hafi valdið miklum fjarvistum í skólum og á vinnumarkaði með tilheyrandi truflunum. Mörg börn hafi endurtekið þurft að vera í sóttkví og hafi séfræðingar í velferð barna bent á að slíkt geti haft neikvæðar afleiðingar. Því sé lagt til að börn á leik- og grunnskólaaldri þurfi ekki að fara í smitgát eða sóttkví nema þau hafi dvalið eða dvel með einstakling í einangrun.
Breytingarnar í hnotskurn
Með þeirri breytingu sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið verður sóttkví og smitgát með eftirfarandi hætti:
- Sóttkví verður fyrir þá sem eru útsettir á heimili.
- Skilyrði sóttkvíar verða óbreytt, þ.e. aðskilnaður frá öðrum í fimm daga og PCR-próf til að losna.
- Ef ekki er viðhafður fullur aðskilnaður frá smituðum á heimili lýkur sóttkví með PCR-prófi degi eftir að sá smitaði útskrifast, eins og verið hefur.
- Þríbólusettir (smit telur sem ein bólusetning) á heimili fara þó í smitgát í stað sóttkvíar, sbr. að neðan, sem lýkur með PCR-prófi á fimmta degi.
- Smitgát verður fyrir þá sem eru útsettir utan heimilis.
- Í smitgát skal viðkomandi bera grímu í margmenni og þegar ekki verður hægt að viðhafa tveggja metra nándarreglu, úti sem inni. Forðast skal mannmarga staði og sleppa umgengni við viðkvæma einstaklinga.
- Smitgát þarf að viðhafa í fimm daga og ekki þarf sýnatöku til að losna, sbr. þó þríbólusetta sem eru útsettir á heimili.
- Börn á leik- og grunnskólaaldri eru undanþegin smitgát í þessum tilfellum en þurfa að vera í sóttkví ef smit er á heimili.
Minnisblað sóttvarnalæknis um breytingu á sóttkví, einangrun og sýnatökum vegna COVID-19