Fara á efnissvæði
09. ágúst 2019

Söfnuðu í minningarsjóð á Unglingalandsmóti

Hópur ungra Þórsara sem tóku þátt á Unglingalandsmóti UMFÍ 2019 og keppti undir nafninu Þorpararnir gáfu í gær 160 þúsund krónur í Minningarsjóð um Baldvin Rúnarsson.

Krakkarnir sem mynda þennan hóp eru strákar úr 5. flokki og stelpur úr 4. flokki þau seldu auglýsingar á búningana og merktu þá með nafni Baldvins Rúnarssonar, Bassa eins og hann var kallaður og tölustöfunum 603. Þegar reiknisdæmið var gert upp var 160 þúsund krónur í afgang og krakkarnir vildu því gefa þann pening til minningar um Baldvin heitinn.

Þann 8. ágúst komu svo saman í Hamri, nokkrir strákar úr hópnum og færðu Ragnheiði Jakobsdóttur móður Baldvins peningana og treyju að gjöf. 

Sannarlega falleg gjöf hjá þessum ungu krökkum. 

 

Mynd th. Drengirnir ásamt Hermanni Helga. Mynd: Palli jóh

Mynd tv. Þórsararnir – Þorpararnir – sem kepptu á Höfn. Efri röð frá vinstri: Bjarki Fannar Arnarson, Aron Geir Jónsson, Natan Aðalsteinsson, Guðmundur Steinn Sigurðsson, Kristinn Örn Ægisson, Bessi Ólafsson, Pétur Orri Arnarson, Hákon Kári Jónsson, Bjarni Már Ægisson, Anna Guðný Sveinsdóttir og Emilía Björk Óladóttir. Neðri röð frá vinstri: Steingrímur Ólason, Hilmar Daði Jónsson, Sonja Björg Sigurðardóttir, Linda Rós Jónsdóttir, Haukur Leo Þórðarson, Kristjana Vera Kelley, Katrín Sara Harðardóttir, Júlía Margrét Sveinsdóttir og Freydís Jóna Bergsveinsdóttir. Liggjandi, frá vinstri: Styrmir Lár Sigurðsson, Hrafn Leví Þórðarson.

 

Fréttin birtist fyrst á heimasíðu Þórs. Thorsport.is