Fara á efnissvæði
05. febrúar 2019

Soffía er nýr formaður Íþróttanefndar ríkisins

„Þetta leggst mjög vel í mig og allir í nefndinni afar jákvæðir. Nú er ég að kynna mér málin, skoða frumvarp um íþróttastefnu og umsagnir um hana ásamt mörgu fleiru,“ segir Soffía Ámundadóttir, sem tekið hefur við sem formaður Íþróttanefndar ríkisins af Stefáni Konráðssyni. Nefndin fundaði óformlega í fyrsta sinn á föstudag í síðustu viku. Soffía er fyrsta konan til að setjast í formannsstólinn og er yngsti meðlimur nefndarinnar.

Hlutverk Íþróttanefndar ríkisins er að veita mennta- og menningarmálaráðuneytinu ráðgjöf í íþróttamálum, gera tillögu til ráðuneytisins um fjárframlög til íþróttamála og um úthlutun fjár úr íþróttasjóði. Á borði nefndarinnar eru jafnframt málefni þjóðarleikvangs og félagasamtaka.

Soffía segir mörg mál á dagskrá sem nefndin muni leggja áherslu á, aðgerðaráætlun hennar til næstu fjögurra ára, svo sem kynjajafnrétti í íþróttum, málefni barna af erlendum uppruna og þeirra sem eru á jaðrinum. Þá muni ráðgjöf nefndarinnar byggja á nánu samráði við sérfræðinga.

Í nýskipaðri Íþróttanefnd ríksins eru auk Soffu þau Örn Guðnason, sem tilnefndur er fyrir hönd UMFÍ; Sigríður Jónsdóttir frá ÍSÍ; Jóhanna M. Hjartardóttir, sem tilnefnd er fyrir hönd sveitarfélaga og Erlingur S. Jóhannsson sem situr í nefndinni fyrir hönd Háskóla Íslands.

Varamenn eru þau Hörður Gunnarsson, Þráinn Hafsteinsson, Ragnheiður Högnadóttir, Bragi Bjarnason og Þórdís Lilja Gísladóttir.