Fara á efnissvæði
05. mars 2021

Sonja Lind er nýr sambandsstjóri UMSB

Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir var kosin nýr sambandsstjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB) á 99. sambandsþingi sem haldið var í Hjálmakletti í Borgarnesi í gær. Hún tekur við stóli sambandsstjóra UMSB af Braga Þór Svavarssyni, skólameistara Menntaskóla Borgarfjarðar.

Fleiri breytingar urðu á stjórn  UMSB en sætaskipti Sonju og Braga. Nýr ritari var kosinn Rakel Dögg Sigurgeirsdóttir, sem tók við af Bjarna Þór Traustasyni. Aðrir í stjórn UMSB eru Sigríður Bjarnadóttir er gjaldkeri, Guðrún Þórðardóttir er varasambandsstjóri, Rakel Guðjónsdóttir er meðstjórnandi, Borgar Páll Bragason er vara varasambandsstjóri, Ástríður Guðmundsdóttir er vara ritari og Eyjólfur Kristinn Örnólfsson er varagjaldkeri.

Þingstörf gengu vel fyrir sig og voru þingfulltrúar ánægðir að sjá að rekstur UMSB sem sjaldan hefur verið jafn sterkur. Mikilvægt er að viðhalda áfram góðum rekstri sambandsins. Samstaða var um þær tillögur sem afgreiddar voru á þinginu og fundarmenn voru sáttir með gott þing. Sveitarfélögum innan UMSB var sérstaklega þakkað fyrir dýrmætan stuðning og gott samstarf á liðnu ári. Stuðningur sem þessi gerir UMSB kleift að halda úti öflugu starfi, samfélaginu öllu til heilla.

Hallbera Eiríksdóttir, sem situr í stjórn UMFÍ, sat þingi fyrir hönd UMFÍ, hélt ávarp og afhenti viðurkenningar.

Í upphafi þings voru veittir styrkir úr afreksmannasjóði UMSB. Öflugir íþróttamenn fengu styrki úr sjóðnum að þessu sinni það voru þau Alexandrea Guðnýjardóttir kraftlyftingar kona, Birgitta Dröfn Björnsdóttir dansari, Bjarni Guðmann Jónsson, Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftingar kona og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir körfuboltakona. Í fyrsta skipt síðan sjóðurinn var stofnaður var veittur styrkur til liðs að þessu sinni var það Kvennalið Skallagríms í körfubolta sem hlaut styrk.

Hluti af stjórn UMSB 2021: Sonja Lind, sambandsstjóri UMSB, Rakel meðstjórnandi, Rakel Dögg ritari, Borgar Páll vara varasambandsstjóri, Guðrún varasambandsstjóri og Sigríður gjaldkeri.