Fara á efnissvæði
25. janúar 2021

Sportabler og Nóri sameinast í einstökum hugbúnaði

Framkvæmdastjóri Sportabler segir sameinað lausnaframboð Sportabler og Nóra geta veitt íþróttafélögum, sveitarfélögum og háskólasamfélaginu verðmætar upplýsingar um stöðu íþróttastarfs.

„Við höfum verið að færa stjórnendum íþróttafélaganna þessar fréttir og fengið gríðarlega góð viðbrögð. Stjórnendur félaganna eru líka mjög sáttir við að fá eitt gott kerfi til að vinna með,“ segir Markús Máni Michaelsson Maute, framkvæmdastjóri og annar stofnenda Sportabler. Fyrirtækin Greiðslumiðlun og Abler hafa náð samkomulagi um að samtvinna lausnaframboð sitt á sviði hugbúnaðar fyrir íþrótta- og tómstundastarf. Þetta hefur í för með sér að Nórakerfið og Sportabler verða sameinuð í einu fyrirtæki. Markmiðið er að bæta þjónustu við viðskiptavini í einu öflugu þjónustu- og hugbúnaðarfyrirtæki.

 

Vinna betur saman

Markús segir sameininguna eiga sér þó nokkurn aðdraganda, enda hafa báðir aðilar lengi vel séð mikil tækifæri í því að starfa saman.

„Við höfum öll mikinn metnað og áhuga á skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Þetta skref gerir okkur kleift að hugsa stærra og þróa frekari virðisaukandi lausnir til að þjónusta félögin og styðja við það samfélagslega mikilvæga starf sem unnið er innan hreyfingarinnar á hverjum degi. Það má einnig segja að á vissan hátt séum við að bregðast við ákalli markaðarins um heilstætt þjónustuframboð og „eitt kerfi“ til að vinna með.

 

 

Starfsmenn sameinaðra fyrirtækja munu næstu daga og vikur vinna að því að samþætta lausnirnar og verða breytingar kynntar síðar.

 

Sameining opnar mikla möguleika

Markús er mjög spenntur fyrir þessum breytingum.

„Það er gríðarleg reynsla og þekking í Nóra og meðal fólksins sem að honum stendur – ég hef því verið að meðtaka mikið undanfarna daga. Fólk er kannski farið að gleyma því hvað Nórakerfið var í raun mikil bylting fyrir íþróttafélögin þegar skráningarkerfið kom til sögunnar. Með tilkomu Nóra urðu ákveðin vatnaskil í því hvernig skráningarog innheimtumálum er háttað hjá íþróttafélögum. Söguleg gögn sýna að skráningar og tekjur af æfingagjöldum hækkuðu um 15−25% hjá félögunum eftir að Nóri kom til sögunnar. Þessa auknu tekjur hafa félögin getað nýtt til rekstrar og fjárfestingu í þjónustu og innviðum,“ segir Markús Máni.

 

„Við hjá Sportabler höfum lagt áherslu á að þjónusta þjálfara, iðkendur og foreldra með notendavænum lausnum sem tengja hagsmunaaðila saman með gagnvirkum snertifleti. Mælingar sýna að appið er í afar tíðri notkun hjá fólki sem eflir starfsumhverfið til muna. Þessi sameining opnar á ótal möguleika í framtíðinni. Það má áætla að í sameiningu þjónustum við yfir 95% af íþróttaiðkun barna- og unglinga á Íslandi. Við sjáum mikil tækifæri til að fara dýpra í þjónustuna og verðum fær um að veita afar góðar upplýsingar um þróunina í skipulögðu íþróttastarfi, sem bæði starfsfólk sveitarfélaga, stjórnendur íþróttafélaga og háskólasamfélagið getur nýtt sér á marga vegu,“ segir Markús Máni og hvetur til samvinnu við sem flesta hagsmunaaðila innan hreyfingarinnar um þetta verkefni.

 

 

„Í raun getum við veitt íþróttahreyfingunni og þeim sem vilja rannsaka stöðuna upplýsingar nokkurn veginn á rauntíma á t.d. nýliðun eða brottfalli, kallað fram stöðu eftir póstnúmerum og séð til hvaða hópa þarf að ná betur. Þá getum við líka séð hvað virkar og hvað virkar ekki, hvaða umgjörð og aðferðafræði heldur iðkendum lengur í íþróttum, eða hvað kann að leiða til þess að iðkendur hætta. Íþrótta- og tómstundastarf er samfélaginu gríðarlega verðmætt og nú getum við verið enn gagnadrifnari í allri framþróun, samvinnu og miðlun þekkingar. Samhliða þessu vinnum við hörðum höndum að nýrri og spennandi þjónustu sem við munum kynna fyrir félögum á næstu misserum.“

 

Upplýsingar um fyrirtækin og forritin

Nóra-kerfið

 

Sportabler

 

Umfjöllunin og viðtalið er í nýjasta viðtali Skinfaxa, tímariti UMFÍ.

Þú getur smellt hér til að lesa Skinfaxa