Fara á efnissvæði
23. september 2019

Starf framkvæmdastjóra HSV laust til umsóknar

Stjórn Héraðssambands Vestfirðinga auglýsir starf framkvæmdastjóra HSV laust til umsóknar. HSV er með starfssvæði í Ísafjarðarbæ og Súðavíkurhreppi og hefur 16 aðildarfélög innan sinna vébanda. Sambandið vinnur náið með sveitarfélögunum tveimur að uppbyggingu íþróttamála á svæðinu ásamt því að vinna með aðildarfélögum að framgangi einstakra íþróttagreina.

Framkvæmdastjóri er starfsmaður stjórnar HSV og ber ábyrgð á daglegum rekstri ásamt samskiptum við sveitarfélög, aðildarfélög og aðra hagsmunaaðila innan íþróttahreyfingarinnar. Um er að ræða 75-100% starf og er æskilegast að viðkomandi geti hafið störf 1. desember eða eftir nánara samkomulagi.

Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Stjórn HSV áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 14. október.

 

Helstu verkefni:

 

Hæfnikröfur:

 

Með umsókn skulu eftirfarandi gögn fylgja:

Umsóknir skulu berast í tölvupósti á netfangið hsv@hsv.is eða bréfleiðis á skrifstofu HSV:

Héraðssamband Vestfirðinga
Suðurgötu 12
400 Ísafjörður

Nánari upplýsingar veita:
Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir framkvæmdastjóri HSV
863-8886 / hsv@hsv.is
Ásgerður Þorleifsdóttir formaður HSV 697-7867 / asatorleifs@gmail.com

 

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir úr starfi HSV