Fara á efnissvæði
20. nóvember 2019

Stórt skref fyrir þriðja geirann

„Þriðji geirinn hefur verið lítið rannsakaður. Þetta er fyrsta skrefið til að varpa frekara ljósi á umfang hans, hversu mikið almannaheillafélög og sjálfboðaliðar leggja til samfélagsins og 

hagkerfisins auk margra fleiri þátta,“ segir Jónas Guðmundsson, formaður Almannaheilla, samtaka þriðja geirans.

Á morgun, fimmtudaginn 21. nóvember, fer fram í sal Þjóðminjasafns Íslands undirritun viljayfirlýsingar stjórnvalda, Almannaheilla og Háskóla Íslands um að ganga til samstarfs um eflingu samfélagslegrar nýsköpunar. UMFÍ er aðildarfélag Almannaheilla.

Viðburðurinn fer fram á milli klukkan 10:00 - 11:30.

Vaxandi – miðstöð samfélagslegrar nýsköpunar innan Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands mun taka þátt í samstarfinu fyrir hönd Háskóla Íslands. Á grunni viljayfirlýsingarinnar verður unnið sameiginlega að því að skapa félagasamtökum aukna möguleika á að starfa að samfélagslegum umbótum.

Í tilefni þessa mun Jónas flytja stutt ávarp ásamt þeim Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar og Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands.

Auk þess mun Steinunn Hrafnsdóttir, prófessor í félagsráðgjöf, ræða hlutverk íslenskra almannaheillasamtaka í félagslegri nýsköpun og Lars Hulgaard, prófessor við Háskólann í Hróarskeldu og alþjóðlega þekktur fyrirlesari í Evrópu, mun fjalla um mikilvægi félagslegra frumkvöðla.

Jónas segir mikilvægt að taka saman upplýsingar um framlag þriðja geirans til samfélagsins, þar á meðal allra þeirra sjálfboðaliða sem leggja hönd á plóg hjá félagasamtökum og verðmæti þeirrar vinnu. Við erum mjög spennt fyrir þessu,“ bætir hann við.

Fundarstjóri á viðburðinum verður Ómar H. Kristmundsson, prófessor við Háskóla Íslands.

 

Dagskráin:

10:00 Setning fundar: Ómar Kristmundsson, prófessor.

10:15 Undirritun viljayfirlýsingar.
Stutt ávörp flytja Þórdís Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Jónas Guðmundsson, formaður stjórnar Almannaheilla.

10:30 Steinunn Hrafnsdóttir, prófessor: „Hlutverk almannaheillasamtaka í félagslegri nýsköpun á Íslandi.“

10:45 Lars Hulgaard, prófessor við Háskólann í Hróarskeldu og stofnandi og forstöðumaður „Centre for social entrepreneurship, Roskilde University.“: „Social innovation in civil society context”.

11:30 Fundarlok.

 

Meira um viðburðinn á Facebook

Vefsíða Almannaheilla