Fara á efnissvæði
27. júlí 2022

Svona verður Selfoss um verslunarmannahelgina

Unglingalandsmót UMFÍ fer fram víða í frábærri aðstöðu á Selfoss um verslunarmannahelgina. Öllum íþróttahúsum bæjarins, á golfvellinum, götuhjólreiðar fara frá Lindex í austurhluta bæjarins og svo má lengi telja. 

Nokkrar leiðir eru inn í bæinn og hefur lögreglan biðlað til ökumanna að fara frekar Þrengslin eða aðrar leiðir en þá algengustu um Hellisheiði. 

Í mótsblaði Unglingalandsmótsins er að finna kort af bænum. 

Í mótsblaðinu er líka að finna ítarlegar upplýsingar um mótsstaði, alla afþreyinguna og margt fleira sem í boði er á Selfossi á meðan Unglingalandsmóti UMFÍ stendur. 

Þú getur smellt á forsíðu mótsblaðsins hér að neðan til  að næla þér í rafrænt eintak. 

Þátttakendur og aðrir mótsgestir fá blaðið afhent þegar komið er að sækja mótsgögn í upplýsingamiðstöð Unglingalandsmótsins. Miðstöðin opnar klukkan 15:00 á fimmtudag og verður hún alla helgina í Fjölbrautaskóla Suðurlands.