Fara á efnissvæði
05. desember 2021

Takk fyrir þitt framlag kæri sjálfboðaliði!

Í dag er Dagur sjálfboðaliðans um allan heim. Sjálfboðaliðastörf hafa verið uppistaðan í öllu starfi UMFÍ í 110 eða frá því ungmennafélagshreyfingin var stofnuð árið 1907.

Sjálfboðaliðar vinna gríðarlega mikilvægt starf víða í samfélaginu og er afar óvíst að rekstur íþróttafélaga gæti gengið án framlags fólks sem gefur félögunum vinnu sína.

Sjálfboðaliðar eru hlutfallslega fleiri hér á landi en á hinum Norðurlöndunum og gera þeir margt að veruleika sem annars myndi aldrei líta dagsins ljós innan íþróttahreyfingarinnar.

Ætla má að 32% Íslendinga 18 ára og eldri taki þátt í sjálfboðaliðastarfi á hverju ári. Langflestir eru sjálfboðaliðarnir innan íþróttahreyfingarinnar eða 27.000 talsins.

Ávinningurinn sem skapast af starfi þeirra kemur fram í jákvæðum áhrifum á börn og unglinga og fyrirbyggjandi atriðum sem tengjast heilsu og sjúkdómum, að því er fram kemur í nýlegri bók dr. Ágústar Einarssonar, Íþróttir hérlendis í alþjóðlegu samhengi.

Kæri sjálfboðaliði, takk fyrir framlagið þitt. Við gætum þetta ekki án þín. Þetta er þinn dagur.

 

Hér má sjá nokkrar myndir af þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem hafa lagt sitt af mörkum fyrir UMFÍ og ýmsa viðburði aðildarfélaga UMFÍ á síðastliðnum árum.