Fara á efnissvæði
22. nóvember 2021

Þingeyingar auka fjölbreytni og stofna nýtt íþróttafélag

Tvö ár eru síðan nokkrir Öxfirðingar fóru að skoða stofnun nýs félags sem myndi taka yfir starfsemi óvirkra ungmennafélaga í byggðarlaginu. Formaður Íþróttafélagsins Þingeyings segir fólk vilja gera eitthvað fleira en að vinna og horfa á sjónvarpið.

„Það er ekki mikið í boði fyrir fólk í þessu litla samfélagi. Á sumum stöðum er fátt annað í boði fyrir börn en að fara með mömmu og pabba í vinnuna, sinna heimanáminu eða vera
inni í svokölluðum „skjátíma“. Við fullorðna fólkið getum alveg kennt okkur sjálfum um hvernig þetta er orðið. En nú ætlum við að gera eitthvað og mér skilst að það sé auðveldara að gera það undir merkjum félags,“ segir Róbert Karl Boulter, formaður Íþróttafélagsins Þingeyings.

 

 

Félagið var stofnað í byrjun júní á þessu ári. Félagssvæði þess er Öxarfjörður. Félagið tekur við hlutverki þriggja gamalla ungmennafélaga og sameinar íþróttastarf á öllu svæðinu í einu félagi. Markmið félagsins er samkvæmt lögum þess iðkun íþrótta og hvers konar félagsstarf sem kemur félagsmönnum til góða. Aðdragandinn að stofnun Íþróttafélagsins Þingeyings er nokkur. Fyrsti fundur um málið var haldinn haustið 2019 og síðan voru haldnir nokkrir fundir með forsvarsmönnum ungmennafélaga við Öxarfjörð. Í júní var svo aðalfundurinn haldinn þar sem Róbert var kosinn formaður ásamt öðrum í stjórn. 

 

Fólk vill gera eitthvað saman

Róbert segist ekki hafa mikinn áhuga á félagsstörfum og í raun litla  þekkingu á þeim. En þeim mun meiri áhuga á að láta hluti gerast og koma starfi félagsins í gang. „Stofnun félags hjálpar til enda opnar það fleiri dyr og möguleika,“ segir hann. „Hvatinn að stofnun íþróttafélagsins var að opna fólkinu sem býr á svæðinu aðgang að þeim rýmum sem við höfum nú þegar til íþróttaiðkunar, búa til grunn fyrir fólk á svæðinu til að hittast og gera eitthvað annað saman en að vinna stanslaust. Svo hefur ekki neitt verið í boði fyrir börn hér á svæðinu síðastliðin tvö sumur. Það er þess vegna gaman að búa til grundvöll fyrir starfsemi í íþróttahúsinu, bæði fyrir börn og fullorðna, sem kannski vilja bara hittast og dansa eða fara í „snúsnú” einu sinni í viku. Það væri nóg,“ segir Róbert sem vinnur nú að því ásamt stjórn félagsins að kynna starfsemina fyrir sveitarstjórn og afla styrkja fyrir framtíðina.

En hvað verður í boði?

„Við vorum með íþrótta- og leikjaæfingar í sumar og hugmyndin er að hafa það aftur. Í íþróttahúsinu í Lundi er líka lítill klifurveggur. Það er áhugi á að nota hann en við þurfum að fjárfesta í öryggisbeltum fyrir litla líkama. Sjálfur hefur ég æft göngu á línu (e. slackline) og get vel hugsað mér að bjóða upp á þá íþrótt í íþróttahúsinu í Lundi,“ segir Róbert að lokum.

Margar sameiningar í gegnum tíðina

Íþróttafélagið Þingeyingur tekur við starfsemi ungmennafélagsins Leifs heppna og félaganna Umf. Snartar og Umf. Öxfirðinga, sem voru bæði óvirk. Þingeyingar þekkja reyndar ágætlega til sameiningar félaga og hreinsunarstarfs í íþróttalífinu. Sem dæmi má nefna að Umf. Núpsveitunga og Umf. Neisti sameinuðust árið 1974 undir nafninu Umf. Snörtur.
Íþróttafélagið Þingeyingur á aðild að Héraðssambandi Þingeyinga (HSÞ), sem varð til við sameiningu Héraðssambands Suður-Þingeyinga (HSÞ) og Ungmennasambands
Norður-Þingeyinga (UNÞ) árið 2007.

 

Greinin birtist í nýjasta tölublaði Skinfaxa, tímariti UMFÍ. Þú getur smellt á forsíðu blaðsins hér að neðan og lesið greinina í rafrænni útgáfu blaðsins.