Fara á efnissvæði
07. apríl 2018

Þingmenn leggja til að ráðherra skipi starfshóp um lýðháskóla

„Mér finnst mikilvægt að koma máli um lýðháskóla UMFÍ á Laugarvatni að á Alþingi. Við náum vonandi að mæla fyrir málinu fyrir þinglok og munum leggja það svo fram aftur í upphafi þings í haust þar sem óvíst er að það nái lengra á yfirstandandi þingi,“ segir Willum Þór Þórsson.

Willum Þór og fjórir aðrir þingmenn Framsóknarflokksins leggja til að Alþingi feli Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, að skipa starfshóp sem skipuleggi stofnun lýðháskóla UMFÍ á Laugarvatni. Gert er ráð fyrir því að í starfshópnum sitji a.m.k. einn fulltrúi frá UMFÍ og einn frá Bláskógabyggð.  Í greinargerð með tillögunni er tekið fram að engin lög eru til um lýðháskóla hér á landi. UMFÍ hafi reglulega viðrað áhuga á að stofna lýðháskóla en ætíð vilja gera það þegar lagaumgjörðin er til staðar. Á því hefur málið strandað. Þá kemur fram í tillögunni að frumvarp til laga um lýðháskóla fer fram í mennta- og menningarmálaráðuneytinu um þessar mundir. Samkvæmt tillögunni á starfshópurinn að skila niðurstöðum sínum fyrir árslok 2018.

Willum segir tillöguna gera ráð fyrir því að starfshópur um stofnun lýðháskóla UMFÍ geti unnið samhliða því sem vinna við frumvarpið fer fram í ráðuneytinu.

Samkvæmt tillögunni mun starfshópurinn um stofnun lýðháskóla taka mið af yfirstandandi vinnu við lagafrumvarp um lýðháskóla, nýtingu mannvirkja og skólans á Laugarvatni, rannsóknum Námsmatsstofnunar og fleiri aðila á brotthvarfi nemenda úr framhaldsskólum og reynslu af stofnun og rekstri annarra lýðháskóla hér á landi, einkum á Flateyri og Seyðisfirði.

 

Tillagan í heild sinni:

 

Tillaga til þingsályktunar 

 

um stofnun lýðháskóla UMFÍ á Laugarvatni.

 

Flm.: Willum Þór Þórsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Þórunn Egilsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir.


Alþingi ályktar að fela mennta- og menningarmálaráðherra að skipa starfshóp sem skipuleggi stofnun lýðháskóla UMFÍ á Laugarvatni, á grundvelli fyrirhugaðrar löggjafar um lýðháskóla. Ráðherra ákveði skipan starfshópsins en í honum sitji a.m.k. einn fulltrúi frá UMFÍ og einn frá Bláskógabyggð. Hópurinn taki m.a. mið af yfirstandandi vinnu við lagafrumvarp um lýðháskóla, nýtingu mannvirkja og skólans á Laugarvatni við rekstur sumarbúða UMFÍ, rannsóknum Námsmatsstofnunar og fleiri aðila á brotthvarfi nemenda úr framhaldsskólum og reynslu af stofnun og rekstri annarra lýðháskóla hér á landi, einkum á Flateyri og Seyðisfirði. Starfshópurinn skili niðurstöðum sínum fyrir árslok 2018. 

Greinargerð.

Á Íslandi eru engin lög til um lýðháskóla. Með samþykkt þingsályktunartillögu um lýðháskóla 2. júní 2016 (17. mál á 145. löggjafarþingi) var mennta- og menningarmálaráðherra falið að hefja vinnu við gerð frumvarps til almennrar löggjafar um lýðháskóla á Íslandi að norrænni fyrirmynd. Markmiðið með löggjöfinni er að gera lýðháskóla að viðurkenndum valkosti í menntakerfinu sem njóti lagalegrar umgjarðar og opinbers stuðnings, eins og segir í inngangi greinargerðar með tillögunni. Samkvæmt henni er ráðherra falið að leggja fram frumvarp í síðasta lagi á vorþingi 2017. Sú tímasetning hefur ekki staðist en vinna við samningu frumvarps til laga um lýðháskóla fer fram í ráðuneytinu um þessar mundir. 

Lýðháskólar og ungmennabúðir. 
LungA-skólinn sem stofnaður var árið 2013 er sem stendur eini lýðháskólinn sem starfræktur er hér á landi. Skólinn hefur aðsetur á Seyðisfirði og er rekinn á styrkjum frá opinberum aðilum og einkaaðilum auk skólagjalda. Þar er lögð áhersla á sjálfskoðun í gegnum listir og skapandi vinnu. Mikið og gott starf hefur farið þar fram. 
    Unnið er að stofnun lýðháskóla á Flateyri og er stefnt að opnun í haust. Verkefnið tekur mið af lögum um framhaldsfræðslu. Stefnt er að því að bjóða upp á námsbrautir sem byggjast á styrkleikum staðarins og mannauð, þ.e. kvikmyndagerð, tónlist, fjallamennsku og umhverfisfræði. Skólinn nýtir vannýtt húsnæði í þorpinu fyrir starfsemi sína. 
    Í gegnum tíðina hefur UMFÍ reglulega viðrað áhuga á því að stofna lýðháskóla. Í nokkur skipti hefur verið farið af stað með verkefnið en það hefur jafnan stöðvast, því að ekki er til lagaumgjörð um þetta skólaform á Íslandi, eins og fram hefur komið. UMFÍ leggur áherslu á að hlutirnir gerist í réttri röð og að lagaumgjörð sé fyrsta skrefið. 
    Áhugi er fyrir stofnun lýðháskóla á Laugarvatni með aðkomu menntamálayfirvalda og Bláskógabyggðar. UMFÍ hefur nú þegar myndað samstarfsteymi við lýðháskóla í Danmörku sem er tilbúinn að leggja sitt af mörkum í undirbúningi og framkvæmd, enda er rík hefð fyrir lýðháskólum í Danmörku og víðar á Norðurlöndunum. 
    UMFÍ hefur rekið ungmennabúðir á Laugum í Sælingsdal til fjölda ára. Þar koma skólahópar í 9. bekk í tæplega vikudvöl með kennurum sínum. Eftirsóknarvert hefur verið að koma í búðirnar en þar er lögð áhersla á félagsfærni, útivist og upplifun án nútímatæknibúnaðar. Öll viðfangsefnin eru unnin í óformlegu námi. Nú hefur Dalabyggð selt eignirnar að Laugum og óvissa er uppi um hvað við tekur. Rætt hefur verið um að færa búðirnar að Laugarvatni. 
    Með aðkomu UMFÍ á Laugarvatni myndast tækifæri til þess að koma að stofnun lýðháskóla og rekstri ungmennabúða og tryggja um leið að ýmis verkefni stöðvist ekki heldur geti haldið áfram í óbreyttri mynd. Þar má t.d. nefna stuttar ferðir, samkomur og fundi íþrótta- og ungmennafélaga, og ekki síst sumarbúðir Íþróttasambands fatlaðra en fram hefur komið eindreginn vilji forsvarsmanna sambandsins til að halda búðunum áfram starfræktum. 

Um kosti lýðháskóla. 
Í lýðháskóla er unnið út frá öðrum áherslum og markmiðum en viðgengst í hefðbundnum bók- og verknámsskólum. Þar er mikil áhersla lögð á mannrækt, sjálfsrækt og virka þátttöku nemenda. Lýðháskóli er góð millilending fyrir nemendur sem vita ekki í hvaða átt þeir vilja stefna og fyrir ungt fólk sem flosnað hefur upp úr námi. Niðurstöður nýlegrar rannsóknar um áhrif þess að fara í lýðháskóla sýna marktæk jákvæð áhrif af veru í lýðháskóla í tengslum við brottfall úr námi. Ungt fólk sem flosnað hefur úr námi eykur líkur sínar á því að fara aftur í nám og ljúka því með því að fara í lýðháskóla.