Til hamingju með daginn sjálfboðaliðar!
![](/media/2qrlk1xg/5o6a2128.jpg?width=400&height=400&v=1da277f786d9bb0 1x)
Dagur sjálfboðaliðans er í dag. Í tilefni af því munu ÍSÍ og UMFÍ bjóða sjálfboðaliðum íþróttahreyfingarinnar að koma í Íþróttamiðstöðina í Laugardal og halda upp á daginn.
Dagskráin hefst klukkan 15:00 með stuttu málþingi. Þar munu sjálfboðaliðar sem tilnefndir voru sem Íþróttaeldhugi ársins 2022 segja sögu sína úr sjálfboðaliðastarfi fyrir íþróttahreyfinguna.
Þetta eru þau Haraldur Ingólfsson (KA/Þór), Þóra Guðrún Gunnarsdóttir (ÍSS, Björninn, SR) og Friðrik Þór Óskarsson (FRÍ, ÍR).
Klukkan 16:00 er öllum viðstöddum boðið í vöfflukaffi í boði Vilko og Mjólkursamsölunnar í þjónustumiðstöð UMFÍ.
Með þessu vilja ÍSÍ og UMFÍ vekja athygli á ómetanlegu framlagi sjálfboðaliða til íþróttastarfsins, en án þeirra gengi starfið einfaldlega ekki upp. Takk sjálfboðaliðar!
Viðburður á Facebook fyrir sjálfboðaliða sem vilja koma í vöfflukaffi
![](/media/br2pihnk/2023-davidmar-umfi-unedited-6338.jpg?width=560&height=320&v=1da277fbad1ea60 1x)