Fara á efnissvæði
09. ágúst 2022

Tímamót í íþróttahreyfingunni

Þau tímamót urðu nýlega í íþróttahreyfingunni þegar þeir Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, og Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, skrifuðu undir samning um leigu á húsnæði fyrir starfsemi UMFÍ í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Stefnt er að því að þjónustumiðstöð UMFÍ flytji á 3. hæð Íþróttamiðstöðvarinnar í haust.

Fundarsalir ÍSÍ hafa í gegnum árin verið á þriðju hæðinni í Íþróttamiðstöðinni. Nú er unnið að umfangsmikilli endurskipulagningu allrar þriðju hæðarinnar svo að þar verði til skrifstofurými fyrir starfsemi UMFÍ ásamt fundarsölum ÍSÍ. Framkvæmdir við húsnæðið hófust í sumar og standa yfir inn í haustið. Gert er ráð fyrir því að UMFÍ flytji inn í Íþróttamiðstöðina síðar á árinu.

 

Aukið samstarf innan íþróttahreyfingarinnar

Það eru sannarlega ánægjuleg tímamót að samtökin fari undir eitt þak og mun án nokkurs efa leiða til hagræðis og mögulega betri nýtingu á fjármunum fyrir íþrótta- og ungmennafélagshreyfinguna, einfalda boðleiðir innan íþróttahreyfingarinnar og auka verulega möguleikana á enn frekara samstarfi, samfélaginu til góða.

 

Á myndinni hér að ofan má sjá þau Lárus Blöndal, forseta ÍSÍ, Auði Ingu Þorsteinsdóttur, framkvæmdastjóra UMFÍ, Andra Stefánsson, framkvæmdastjóra ÍSÍ, og Jóhann Steinar Ingimundarson, formann UMFÍ. 

Hér að neðan má svo sjá þá Lárus og Jóhann Steinar skrifa undir leigusamninginn. Kunnugir staðháttum sjá að undirskriftin var gerð í sama herbergi og stefnt er á að UMFÍ flytji inn í.