Fara á efnissvæði
14. nóvember 2018

UMFÍ varar á ný við svikapóstum þar sem óskað er eftir millifærslu

Nú er heldur betur farið að styttast í jólin og stressið farið að aukast hjá ungmenna- og íþróttafélögum. Netsvikahrappar nýta sér álagið og eru þeir á ný byrjaðir að senda svikapósta sem eru látnir líta út sem þeir séu frá framkvæmdastjóra eða formanni félags sem viðkomandi starfar í með beiðni um millifærslu á erlendri mynt inn á erlenda bankareikninga. Upphæðirnar geta verið frá nokkuð hundruð þúsund krónum og upp á nokkrar milljónir króna á erlenda reikninga. 

UMFÍ varar ungmenna- og íþróttafélög við svikapóstum sem þessum. Þeir berast gjaldkerum og fjármálastjórum og stundum stjórnarfólki. 

Fjallað var um svikapóstana í desember í fyrra og er ljóst að glæpamennirnir eru komnir á kreik á nýjan leik. 

 

Hvað á að gera?

Þegar við fjölluðum um svikapóstana fyrir ári var vitnað til upplýsinga frá Landsbankanum. Þar sagði að um sé að ræða afar háþróað netsvindl þar sem nafn formanns eða framkvæmdastjóra félags sé notað við tilbúið netfang og móttakandi nafngreindur. Svindl sem þetta heitir fyrirmælafölsun (e. CEO-fraud) þar sem yfirmaður fyrirtækis eða félags biður um millifærslu á fjármunum á erlenda bankareikninga.

Dæmi um svikapóst:

 

 

Mikilvægt að tilkynna svikin

Landsbankinn hefur stöðvað færslur sem þessar og er málið tilkynnt til lögreglu.

Landsbankinn varaði á dögunum við falspóstum sem þessum.

Í viðvörun Landsbankans segir að svik af þessu tagi hafi færst í aukana á undanförnum árum. Ef grunur leikur á að fyrirtæki hafi orðið fyrir svona árás er mikilvægt að fyrirtæki hafi samband við lögregluna (cybercrime@lrh.is) og sinn viðskiptabanka.

Þegar það er gert setur bankinn af stað ferli í samstarfi við yfirvöld og aðra banka til að endurheimta féð. Því fyrr sem tilkynning berst, þeim mun líklegri eru endurheimtur. Ennfremur er mikilvægt að kæra öll mál til lögreglunnar. Sjaldnast er ráðist á eitt fyrirtæki í einu og það gerir tilkynningar til lögreglu enn brýnni.

Landsbankinn hefur fjallað ítarlega um það hvernig á að þekkja og verjast fyrirmælafölsunum sem þessum og hefur m.a. gert myndband sem sýnir hvernig skeytin líta út og hvað beri að gera.