Fara á efnissvæði
01. desember 2017

UMFÍ varar sambandsaðila við netsvindli

UMFÍ varar ungmenna- og íþróttafélög við svikapóstum sem borist hafa gjaldkerum og fjármálastjórum  síðustu daga. Þessir póstar hafa verið að berast félögum sem eru sambandsaðilar UMFÍ. Látið er svo út líta að póstarnir séu frá formanni eða framkvæmdastjóra viðkomandi félags. Þar biður sendandi gjaldkera eða fjármálastjóra um að millifæra misháar upphæðir á erlenda bankareikninga. Upphæðirnar geta verið frá nokkuð hundruð þúsund krónum og upp á nokkrar milljónir króna á reikninga í Bretlandi og Ítalíu.

„Þetta er grimmt, ömurleg aðför að öllu því góða fólki og sjálfboðaliðunum sem mynda ungmennafélagshreyfinguna. Nú er mikið að gera hjá íþróttafélögum og það nýta sér illa þokkaðir einstaklingar,“ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ. Hún leggur áherslu á að starfsmenn sambandsaðila UMFÍ hugsi sig tvisvar um sem fái tölvuskeyti frá virðist vera frá formönnum og framkvæmdastjóra viðkomandi félags og biðji um millifærslu á fjármunum. Best sé að hringja í viðkomandi og kanna málið.

Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum er þarna um að ræða afar háþróað netsvindl. Þar er nafn formanns eða framkvæmdastjóra félags notað við tilbúið netfang og móttakandi nafngreindur. Svindl sem þetta heitir fyrirmælafölsun (e. CEO-fraud) þar sem yfirmaður fyrirtækis eða félags biður um millifærslu á fjármunum á erlenda bankareikninga.

Dæmi um svindpóstinn:

 

Mikilvægt að tilkynna svikin

Landsbankinn hefur stöðvað færslur sem þessar og er málið tilkynnt til lögreglu.

Landsbankinn varaði á dögunum við falspóstum sem þessum.

Í viðvörun Landsbankans segir að svik af þessu tagi hafi færst í aukana á undanförnum árum. Ef grunur leikur á að fyrirtæki hafi orðið fyrir svona árás er mikilvægt að fyrirtæki hafi samband við lögregluna (cybercrime@lrh.is) og sinn viðskiptabanka.

Þegar það er gert setur bankinn af stað ferli í samstarfi við yfirvöld og aðra banka til að endurheimta féð. Því fyrr sem tilkynning berst, þeim mun líklegri eru endurheimtur. Ennfremur er mikilvægt að kæra öll mál til lögreglunnar. Sjaldnast er ráðist á eitt fyrirtæki í einu og það gerir tilkynningar til lögreglu enn brýnni.

Landsbankinn hefur fjallað ítarlega um það hvernig á að þekkja og verjast fyrirmælafölsunum sem þessum og hefur m.a. gert myndband sem sýnir hvernig skeytin líta út og hvað beri að gera.