Fara á efnissvæði
27. janúar 2022

Ungmennaráð UMFÍ er góður vettvangur

„Raddir unga fólksins eru alltaf að verða meira áberandi,“ segir  Embla Líf Hallsdóttir, sem sæti á í Ungmennaráði UMFÍ.

Rætt er við Emblu í nýjasta tölublaði Bændablaðsins um ungmennaráðið og ráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði. Embla segir stefnt að því að halda næstu ráðstefnu í haust ef aðstæður leyfa. Þegar séu komnar fram hugmyndir sem verið sé að skoða.

Ungmennaráð UMFÍ er samansett af ungu fólki á aldrinum 16 til 25 ára.

Stærsti viðburðurinn sem ungmennaráð UMFÍ stendur fyrir er ráðstefna sem kallast Ungt fólk og lýðræði og er haldin einu sinni á ári.

 

 

„Ráðstefnan er stór og hefur oft staðið í þrjá daga og á hana mætir ungt fólk alls staðar að af á landinu til að ræða ákveðið málefni sem er á döfinni á þeim tíma. Við höfum oft fengið til okkar stjórnmálamenn á ráðstefnuna til að ræða við og svara spurningum okkar,“ bendir Embla á.

„Við stefnum að því að vera með ráðstefnu næsta haust ef aðstæður leyfa og án þess að nokkuð hafi verið ákveðið eru komnar nokkrar hugmyndir sem verið er að skoða.“

Markmiðið með ráðstefnunum er að vera vettvangur fyrir raddir ungs fólks, að fá fólk almennt til að átta sig á að um ungt fólk gildir hugmyndin; ekkert um okkur án okkar.

Á síðustu ráðstefnu tókum við fyrir Lýðræðisleg áhrif – Hvar, hvenær og hvernig getur ungt fólk haft áhrif?“

 

Ótrúlega skemmtilegt starf

Embla er á tuttugasta og fyrsta ári og búsett í Mosfellsbæ en leggur stund á viðskiptafræði með áherslu á verkefnastjórnun við Háskólann á Bifröst.

 

„Ég var 17 ára þegar ég fór á fyrstu ráðstefnuna hjá UMFÍ fyrir hönd ungmennaráðs Mosfellsbæjar. Það var ótrúlega gaman á ráðstefnunni og þar kynntist ég mörgu góðu fólki og þar á meðal bestu vinkonu minni og ég hef starfað innan félagsins síðan þá. Fljótlega eftir ráðstefnuna sá ég auglýst eftir fólki í ungmennaráð UMFÍ og ég bauð mig strax fram,“ segir hún og ætlar að bjóða sig fram sem næsti formaður ungmennaráðs UMFÍ.

Þegar Embla er spurð hvernig henni finnist samfélagið hlusta á hugmyndir og raddir ungs fólks segir hún slíkt hafa aukist.

„Oft hefur það verið þannig að ungt fólk hefur verið notað sem glansmynd við hliðina á stjórnmálamönnum á tyllidögum svo þeir geti sagt að þeir hafi talað við okkur en síðan ekkert gerst í framhaldinu. Svo betur fer tel ég að þetta sé að skána.“

 

Góður vettvangur til að kynnast

Embla segir að starf innan UMFÍ sé bæði góður og skemmtilegur vettvangur til að kynnast fólki sem er á sömu línu og það sjálft. „Liðsheildin innan UMFÍ er sterk og allir að vinna að sama markmiði og andrúmsloftið mjög gott.

Auk stóru ráðstefnunnar hafa ungmennaráðin staðið fyrir viðburðum eins og Skemmtisólarhring þar sem við höfum komið saman og farið eitthvert út á land og gist eina nótt og gert eitthvað skemmtilegt en því miður hefur Covid sett þar strik í reikninginn. Annað sem einnig er mjög skemmtilegt og kallast Samtal ungmennaráða felst í því að ungmennaráðin koma saman og deila hugmyndum um starfið í framtíðinni. “

 

Rætt er við Emblu Líf í nýjasta tölublaði Bændablaðsins.

Blaðið er hægt að nálgast hér.

Hér eru fleiri myndir frá síðustu ungmennaráðstefnunni, sem haldin var í Hörpu árið 2020.