Fara á efnissvæði
29. nóvember 2024

Ungt fólk kaus í strætisvagni

Í kringum 130 nemendur í 10. bekk nokkurra grunnskóla í Reykjavík tóku þátt í lýðræðislegum kosningum framan við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu í morgun. Valið stóð á milli fjögurra málefna, sem rætt var um áður en gengið var til kosninga. 

Kjörklefinn var nýstárlegur en afar hentugur til kosninga. Þetta var strætisvagn og gengur nemendurnir inn um dyrnar að framan til að kjósa en út að kosningu lokinni. 

Kosningin var liður í Lýðræðishátíð unga fólksins, sem er fyrri hluti af ráðstefnunni Fundur fólksins, sem Almannaheill stendur fyrir. Reykjavíkurborg lánaði kjörkassana. Kjörseðlarnir voru líka með óvenjulegu sniði. Ekki voru flokksbókstafir á seðlunum heldur átti að setja X við það málefni sem kjósendum þótti skipta mestu máli. 

Fundur fólksins fer fram á milli klukkan 14 og 18 í Hörpu í dag. Þar verður leitast við að efla lýðræði og samfélagsþáttöku með samtali milli frjálsra félagasamtaka, stjórnmálafólks og almennings. Á meðal málefna eru málstofur um bálstofur, geðheilbrigðismál, velferð barna, starfsumhverfi almannaheilla félaga, forvarnir gegn krabbameini og kosninga hegðun Íslendinga. Þá verða fimmtán almannaheilla félög með kynningarbása og alls taka um 30 félög þátt í viðburðinum.

Lokahnykkur ráðstefnunnar eru pallborðsumræður stjórnmálaflokkanna en þar munu fullrúar flokkanna sitja fyrir svörum.

Fundur fólksins og Lýðræðishátíð unga fólksins eru styrkt af Reykjavíkurborg og Félags- og vinnumálaráðuneytinu. Fundur fólksins er öllum opinn meðan húsrúm leyfir og frítt er á alla viðburði dagsins.