Fara á efnissvæði
30. janúar 2023

Valdís tekin við Æskulýðsvettvanginum

„Við förum strax af stað af krafti með námskeið Æskulýðsvettvangsins eftir áramótin, þar á meðal hnitmiðaðra Verndum þau,“ segir Valdís Helga Þorgeirsdóttir, ný verkefnastýra Æskulýðsvettvangsins.

Hún var í haust ráðin í stöðuna og tekur við af Semu Erlu Serdar, sem hafði gegnt starfinu um nokkurra ára skeið.

Æskulýðsvettvangurinn hefur tekið svolitlum breytingum frá fyrri árum, að sögn Valdísar. Hún mun leggja meiri áherslu en áður á forvarnavinnu í íþrótta- og æskulýðsstarfi og námskeiðahaldi á borð við Verndum þau. Öðrum málum, svo sem málum sem snerta óæskilega hegðun, eineltismálum og fleirum af svipuðu tagi er vísað til skrifstofu samskiptaráðgjafa í íþrótta- og æskulýðsstarfi.

Valdís verður, eins og Sema áður, með aðstöðu í þjónustumiðstöð UMFÍ, sem nú hefur verið flutt í Íþróttamiðstöðina við Engjaveg í Laugardal og er þar íþróttahreyfingin komin svo til öll undir eitt þak.

 

Vinna að þróun verkfæra

Valdís segir starfið hafa breyst síðan Sema hætti. Nú sé líka komin uppfærð samræmd viðbragðsáætlun sem allt skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf geti nýtt sér. Hún bindur vonir við að fleiri taki hana upp enda geti margir nýtt hana, svo sem skólar og félög sem hafi kallað eftir viðbragðsáætlun, enda sé mikil reynsla í hópnum sem stóð að baki áætluninni.

 

Valdís Helga tók við af Semu í október og er meðal annars að vinna í því að fínpússa námskeiðin með ráðgjafahópi Æskulýðsvettvangsins. Námskeiðin öll og fyrirlestrar þeim tengdum eru sem fyrr gjaldfrjáls fyrir aðildarfélög Æskulýðsvettvangsins.

Æskulýðsvettvangurinn hefur m.a. unnið að þróun verkfæra, sem íþrótta- og æskulýðsfélög og aðrir sem starfa með börnum og ungmennum eru hvött til að nýta sér og stuðla að inngildandi félagi og starfsemi. Eitt verkefnanna er Barnavernd – netnámskeið, sem ætlað er að auka þekkingu starfsfólks og sjálfboðaliða um land allt á einelti, ofbeldi og áreitni sem börn og ungmenni geta orðið fyrir og afleiðingar þess. Námskeiðið er gjaldfrjálst.

 

Þetta er Valdís

Valdís Helga er menntaður íþróttafræðingur og jógakennari. Margir þekkja hana líka í góðu gamni sem Völlu Sport, annan stofnenda barna- og fjölskylduhátíðarinnar Kátt á Klambra sem var árlegur viðburður á Klambratúni í Reykjavík árin 2015–2019. Hún kennir einnig jóga og þjálfar hjá líkamsræktarstöðinni Primal Iceland. Þar er unnið með allt frá stoðkerfisvandamálum yfir í æfingaáætlanir og bætingu afreksíþróttafólks, en aðferðir Primal eru aðrar en hafa tíðkast til að vinna með fólki í kulnun og í streitu.

 

Fjögur námskeið vorið 2023

Janúar: Verndum þau í sal KFUM og KFUK.

Febrúar: Hinsegin fræðsla í sal Skátanna

Mars: Samskipti og siðareglur í sal KFUM og KFUK

Mars: Inngilding og fjölmenning í sal Skátanna.

Æskulýðsvettvangurinn vinnur að sameiginlegum hagsmuna- málum barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Æsku- lýðsvettvangurinn er samstarfsvettvangur UMFÍ, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

 

Ítarlegri upplýsingar eru á heimasíðu Æskulýðsvettvangsins á www.aev.is