04. ágúst 2017
Veigar fór völlinn á 86 höggum
![](/media/waalnehf/golf.jpg?width=400&height=400&v=1d9a9c85630c390 1x)
Þóra Björg Yngvadóttir úr HSK, Brimar Jörvi Guðmundsson úr UMSE, Veigar Heiðarsson úr UMSE og Gunnar Einarsson, UÍA, urðu í fyrstu sætum í sínum aldursflokkum í keppni í golfi á Unglingalandsmóti UMFÍ á Egilsstöðum í gær.
Veigar Heiðarsson, sem keppti í flokki stráka 11-13 ára, fór völlinn á fæstum höggum eða 86. Næstur á eftir honum var Gunnar Einarsson. Hann keppti í flokki stráka 14-15 ára og fór völlinn á 87 höggum.
Keppni í golfi fór fram í góðu veðri á Ekkjufellsvelli í gær. Eins og þeir sem þekkja völlinn vita þá er hann fallegur en krefjandi.