Verndum þau
Það er mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvitaðir um skyldur sínar og ábyrgð, að geta lesið í vísbendingar um að vanræksla eða ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt, eigi sér stað og vita hvernig bregðast á við ef slík mál koma upp.
Æskulýðsvettvangurinn hefur frá árinu 2010 staðið fyrir námskeiðinu Verndum þau fyrir þau félagasamtök sem saman mynda vettvanginn og aðra áhugasama. Námskeiðið er byggt á efni samnefndrar bókar og fjallar um hvernig bregðast á við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og ungmennum
Á námskeiðinu er m.a farið yfir:
- Tilkynningaskyldu starfsmanna sem vinna með börnum og unglingum.
- Líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi og vanrækslu hvers konar.
- Hvernig taka skuli á móti ofbeldisfrásögn.
- Reglur í samskiptum við börn og ungmenni.
- Ýmis atriði sem gott er fyrir vinnuveitendur að hafa í huga.
- Úrræði sem í boði eru í samfélaginu fyrir börn og ungmenni sem eru þolendur ofbeldis.
Höfundar bókarinnar, Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis- og afbrotafræðingur og Þorbjörg Sveinsdóttir, sálfræðingur, sjá um kennslu á námskeiðinu. Báðar starfa þær í Barnahúsi og hafa mikla reynslu af barnaverndarmálum.
Næsta námskeið fyrir þau félagasamtök sem saman mynda Æskulýðsvettvanginn fer fram þann 22. janúar 2020. Námskeiðið fer fram í Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík. Námskeiðið hefst kl. 17:00 og stendur til kl. 20:00. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Skráning fer fram á netfanginu aev@aev.is. Við skráningu þarf að koma fram nafn þátttaka, kennitala og félagasamtök.
UMFÍ hvetur starfsfólk og sjálfboðaliða íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar til þess að nýta sér þetta frábæra námskeið.