Fara á efnissvæði
17. ágúst 2023

Verndum þau - barnaverndarnámskeið

Verndum þau

Æskulýðsvettvangurinn hefur frá árinu 2010 staðið fyrir námskeiðinu Verndum þau. Námskeiðið er byggt á efni samnefndrar bókar og fjallar um hvernig bregðast á við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og ungmennum. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem starfa með börnum og ungmennum og öðrum áhugasömum.

Í bókinni er fjallað um alla þessa þætti á aðgengilegan hátt og lesendur eru upplýstir um eðli og birtingarmyndir ofbeldis og vanrækslu, auk þess sem gerð er grein fyrir ferli mála af þessu tagi hjá barnaverndaryfirvöldum og innan dómskerfisins.

Höfundar bókarinnar, Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis, afbrota og fjölskyldufræðingur, og Þorbjörg Sveinsdóttir, sálfræðingur, sjá um kennslu á námskeiðinu. Báðar starfa þær í Barnahúsi og hafa mikla reynslu af barnaverndarmálum.

Á námskeiðinu er m.a farið yfir:

  • Tilkynningaskyldu starfsmanna sem vinna með börnum og unglingum.
  • Líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi og vanrækslu hvers konar.
  • Hvernig taka skuli á móti ofbeldisfrásögn.
  • Reglur í samskiptum við börn og ungmenni.
  • Ýmis atriði sem gott er fyrir vinnuveitendur að hafa í huga.
  • Úrræði sem í boði eru í samfélaginu fyrir börn og unglinga sem eru þolendur ofbeldis.
Næsta námskeið

Næsta námskeið fer fram mánudaginn 21. ágúst kl. 17:30 í húsnæði KFUM og KFUK, Holtavegi 28, 104 Reykjavík. 

Námskeiðið er frítt fyrir allt starfsfólk innan íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar. 

UMFÍ hvetur sambandsaðila til þess að nýta sér námskeiðið til þess að gera starfið hjá sér enn öruggara og öflugra en áður. 

Skráning fer fram hér

Námskeiðaáætlun Æskkulýðsvettvangsins

Það er mikilvægt að allir sem starfa með börnum og ungmennum séu meðvitaðir um skyldur sínar og ábyrgð og viti hvernig á að bregðast við þegar upp koma atvik eða áföll í starfinu. Eitt af markmiðum Æskulýðsvettvangsins er að stuðla að aukinni fræðslu og forvörnum í íþrótta- og æskulýðsstarfi á Íslandi í þeim tilgangi að gera umhverfi barna og ungmenna í félagsstarfi öruggara. Námskeið Æskulýðsvettvangsins eru liður í því.

UMFÍ er eitt af aðildarfélögum Æskulýðsvettvangsins. Sambandsaðilar og aðildarfélög þeirra eru hvött til þess að kynna sér og nýta sér námskeið á vegum Æskulýðsvettvangsins. 

Næstu námskeið eru:

  • Skjánotkun barna og ungmenna. 16. október 2023
  • Samskipti og siðareglur 15. nóvember 2023
  • Hinsegin fræðsla 7. febrúar 2024
  • Verndum þau 20. mars 2023

Hér er hægt að kynna sér nánari upplýsingar um námskeiðin.