Fara á efnissvæði
18. október 2017

Verndum þau - Námskeið fyrir starfsfólk íþróttahreyfingarinnar

Það er mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börnum og unglingum að vera meðvitaðir um skyldur sínar og ábyrgð, geta lesið í vísbendingar um að vanræksla eða ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt, eigi sér stað og vita hvernig bregðast á við ef slík mál skjóta upp kollinum.

Æskulýðsvettvangurinn (ÆV) hefur frá árinu 2010 staðið fyrir námskeiðinu Verndum þau. Námskeiðið er byggt á efni bókarinnar Verndum þau og fjallar um hvernig bregðast á við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og ungmennum. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem starfa með börnum og ungmennum. Höfundar bókarinnar, Ólöf Ásta Farestveit uppeldis- og afbrotafræðingur og Þorbjörg Sveinsdóttir M.Sc. í sálfræði, sjá um kennslu á námskeiðinu. Báðar starfa þær í Barnahúsi og hafa mikla reynslu af barnaverndarmálum.

Næsta námskeið verður haldið þann 19. október 2017, kl. 19.30 - 22:00 í Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, 110 Reykjavík. Við skráningu þarf að koma fram nafn, netfang og starfsvettvangur (aðildarfélag ÆV). Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

 

Á námskeiðinu verður m.a farið yfir: