Fara á efnissvæði
27. mars 2020

Við eigum öll að hlýða Víði!

„Við höfum fengið vísbendingar um að íþróttafólk félaga sé að stunda íþróttaæfingar úti þrátt fyrir strangt samkomubann. Það er ekki til fyrirmyndar. Ég hreinlega undrast að fólk haldi að bannið eigi við um aðra en ekki það sjálft. Við leggjum áherslu við stjórnendur í íþróttahreyfingunni að allt íþróttastarfi eigi að fella niður, bæði barna og fullorðinna, boltaíþróttir, hestaíþróttir, dans og aðrar greinar,“ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.

 

 

ÍSÍ og UMFÍ sendu fyrir viku út sameiginlega tilkynningu til sambandsaðila og íþróttafélaga um að hlé verði gert á öllu íþrótta- og æskulýðsstarfi til að hefta útbreiðslu kórónaveirunnar. Jafnt skuli ganga yfir börn og fullorðna, samkvæmt leiðbeinandi viðmiðum sem heilbrigðisráðuneytið, í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneyti, sendu frá sér vegna samkomubanns sem sett var á vegna farsóttar.

 

Allt íþróttastarf fellur niður

Samkvæmt leiðbeinandi viðmiðum á að fella niður allt íþróttastarf barna og fullorðinna á meðan takmörkun á samkomum og skólastarfi er í gildi.

Samkomutakmörkunum átti að ljúka 13. apríl, annan í páskum. Sóttvarnalæknir gaf hins vegar í skyn í dag að viðbúið sé að þær muni vara lengur. Sektargreiðslur geta legið við brotum á samkomubanni.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, ítrekaði samkomubannið á fundi í dag og sagði margar undanþágubeiðnir hafa borist. Svo virðist sem ekki séu allir með á nótunum. Allir verði að taka samkomubanninu alvarlega og fara eftir þeim leiðbeiningunum sem gefin eru út.

„Þetta samkomubann er sett til að verja líf. Ekki sækja um undanþágur. Það kemur betri tíð og það kemur sumar,“ sagði hann.

Auður Inga segir ljóst að sumir telji sig undanþegna banninu. „Bæði hefur fólk hringt í okkur í þjónustumiðstöð UMFÍ og sent okkur myndir af æfingahópum. Það er miður enda mikilvægt að við snúum öll bökum saman í baráttunni til að hefta útbreiðslu kórónaveirunnar. Við verðum að gera þetta saman,“ segir hún.

 

Athugið að myndin af félagsmanni Sindra á Höfn í Hornafirði tengist fréttinni ekki og ekki félagið heldur.