Fara á efnissvæði
13. september 2023

Við leitum að liðsfélaga!

Í starfinu felst að sinna verkefnum varðandi fræðslumál, gerð alþjóðlegra styrkumsókna ásamt vinnu við samfélagsmiðla og önnur tilfallandi verkefni. 

Um er ræða 100% starf í 6 mánuði en þó er vonast til þess að hægt verði að gera það að fullu starfi til framtíðar. Starfið er í nýrri og glæsilegri þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík þar sem unnið er í opnu rými.

Þjónustumiðstöð UMFÍ er fámennur en skemmtilegur vinnustaður sem leggur áherslu á samstarf, bæði innan sem utan hreyfingar. Viðkomandi þarf því að geta unnið hratt og vel með öðrum, tileinkað sér fjölbreytt vinnubrögð, komið fram fyrir hönd samtakanna og síðast en ekki síst geta unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði og fylgt eftir verkefnum sínum.

 

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Gerð kynningarefnis (prent, samfélagsmiðlar og víðar).
  • Samskipti við íþrótta- og ungmennafélagshreyfinguna.
  • Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af gerð alþjóðlegra styrkumsókna.
  • Reynsla af styrkumsóknum á borð við Erasmus+ er kostur en ekki krafa. 
  • Þekking á helstu samskipta- og hönnunarforritum.
  • Góðir samskiptahæfileikar.

 

Sótt er um starfið á Alfred.is

Óskir um frekari upplýsingar sendist á Auði Ingu Þorsteinsdóttur, framkvæmdastjóra UMFÍ, á netfangið audur@umfi.is.