Fara á efnissvæði
02. maí 2018

Vill fá strákana norður í skotfimi á Landsmótinu

Aðalheiður Lára og eiginmaður hennar hafa bæði skráð sig í skotfimi og stígvélakast. Þau ætla líka að prófa ýmislegt fleira.

„Við erum bæði skráð í skotfimi á 22 kalibera riffla. En svo kom sveitamaðurinn upp í okkur og við skráðum okkur líka í stígvélakastið,“ segir  Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir sem varð 43 ára í byrjun árs. Hún hefur æft skotfimi í fjögur ár og hefur unnið mikið með Skotfélagi Snæfellsness þótt hún hafi nýverið flutt úr Grundarfirði í Voga á Vatnsleysuströnd. 

Aðalheiður segir Pétur Má Ólafsson, eiginmann sinn, hafa farið með byssu frá unga aldri enda er hann alinn upp í sveit en æfir með Skotfélagi Keflavíkur.

 

„Þetta er fjölskyldusportið,“ segir Aðalheiður en bætir við að hún hafi aðeins keppt í skotfimi, aldrei farið á veiðar. „Ég hef aðeins keppt innan félags míns og keppt innanhúss í Borgarnesi. Það er alltaf gaman að fara út úr bænum og hitta nýtt fólk, eins og á Sauðárkróki. Þegar við komum þangað ætlum við að prófa ýmislegt,“ segir hún og ætlar að ýta á strákana í skotfélaginu fyrir vestan að skella sér norður á Landsmótið á Sauðárkróki í sumar.

 

Búðu til þitt eigið Landsmót

Landsmótið verður haldið á Sauðárkróki dagana 12.–15. júlí nk. Mótið er opið öllum frá 18 ára aldri. Áhugasamir þurfa hvorki að vera skráðir í ungmennafélag né annað íþróttafélag. Það eina sem þarf er áhugi á að njóta þess að hreyfa sig og njóta samveru með öðrum.

Á Landsmótinu verða næstum fjörutíu íþróttagreinar í boði. Dagskránni er skipt í fjóra flokka; kepptu, láttu vaða, leiktu þér og skemmtu þér. Það er einmitt láttu vaða sem er ein af nýju áherslunum en þar geta þátttakendur Landsmótsins fengið tækifæri til að prófa fjölda  íþróttagreina eða fá kennslu og kynningu í þeim. Mótsgestir geta valið hverju þeir taka þátt í og sett sitt eigið mót saman. Eitt verð gildir fyrir allt mótið, hvort heldur fólk tekur þátt í einni grein eða mörgum. Flestir viðburðirnir, sem boðið er upp á í tengslum við Landsmótið,
eru fríir og fá þátttakendur afslátt á ýmsa aðra viðburði.

Á mótinu verður, til viðbótar við íþróttirnar, fjöldi viðburða, fyrirlestrar um heilsu, heilbrigði og vellíðan, markaðir og uppákomur alls konar.

Samhliða Landsmótinu fer fram Landsmót UMFÍ 50+. Þetta verður stærsta landsmótið fyrir fimmtíu ára og eldri sem haldið hefur verið.  

Miklu meira verður um að vera á mótinu á Sauðárkróki enda geta þátttakendur tekið þátt í ýmsum viðburðum tengdum Landsmótinu,
ráðstefnum og kynningum, að ógleymdu matar- og skemmtikvöldi þar sem Geirmundur Valtýsson mun stýra skagfirskri sveiflu eins og honum er einum lagið.

 

Fleiri upplýsingar á www.landsmotid.is