Fara á efnissvæði
31. janúar 2018

Viltu koma í partý?

Næsta föstudag stendur UMFÍ í 3ja sinn fyrir svokölluðu umræðupartýi fyrir ungt fólk á aldrinum 16 - 25 ára og stjórnendur innan ungmennafélagshreyfingarinnar. 

Hvað er umræðupartý?

Viðburðurinn hefur það markmið að gefa ungu fólki tækifæri til þess að koma sínum skoðunum á framfæri við stjórnendur innan ungmennafélagshreyfingarinnar. Algengt er að fullorðið fólk sé að skipuleggja verkefni fyrir ungt fólk án þess að tala við ungt fólk og heyra hvað því finnst. Nú er því tækifæri fyrir ungt fólk að láta í sér heyra og stjórnendur að hlusta á raddir ungs fólks.  

Hvernig fer þetta fram?

Til að byrja með verður Nonni frá KVAN með sutt erindi um markmiðasetningu og hvernig við getum verið besta útgáfan af okkur sjálfum - eitthvað sem allir geta nýtt sér. Í framhaldi fara fram fjórar 20 mínútna umræðulotur þar sem allir fá tækifæri til þess að segja sína skoðun á öllum fjórum viðfangsefnunum. Umræðuefnið er: Hvaða breytingar vill ungt fólk sjá á íþróttafélögum? #Metoo og íþróttahreyfingin. Hvað segir unga fólkið? Hvað er ungt fólk að hugsa í umhverfismálum? Hvert er draumaverkefni ungs fólks tengt lýðheilsuverkefnum? 

Veitingar og keila í boði

Að loknum umræðum verður létt hressing í boði sem og öllum þátttakendum gefst kostur á að skella sér frítt í keilu. Við erum því að tala um góðar umræður, fríar veitingar og keilu. 

Ferðastyrkur

Ef þú býrð ekki á höfuðborgarsvæðinu þá er hægt að fá styrk fyrir ferðakostnaði til þess að mæta og taka þátt. Aðeins er hægt að fá styrk fyrir lággjaldafargjöldum eða ódýrasta ferðamátanum. Skila þarf inn kvittunum fyrir 12. febrúar. 

Ertu með spurningu?

Ef þú ert með einhverjar spurningar eða vangaveltur þá er velkomið að senda póst á Ragnheiði, netfangið er ragnheidur@umfi.is. Sími 568 2929. 

Skráningafrestur er til 1. febrúar. Hægt er að skrá sig með því að smella HÉR.