Fara á efnissvæði
29. júlí 2024

Viltu skoða skráningu og liðið þitt?

Lokað var fyrir skráningu á Unglingalandsmót UMFÍ klukkan 16:00 í dag. Við höfum fengið nokkuð af fyrirspurnum frá fólki um skráningu í greinar og heiti liða. Við höfum auðvitað tekið saman leiðbeiningar um það hvernig fólk getur skoðað liðið sitt:

 

Svona er þetta gert:

  • Opnaðu Abler-appið: https://www.abler.io/ 
  • Farðu inn á prófílinn þinn. 
  • Þar velurðu: Markaðstorg.
  • Því næst velurðu skammstöfun þína í horninu hægra megin. 
  • Þar velurðu: Skráningar.
  • Hér velurðu: Smelltu hér til að skrá þig í greinar.
  • Nú ættirðu að sjá allar greinar. 
  • Hafðu líka í huga að í liðskeppnum sérðu líka nafnið á liðinu. Til að sjá aðra þátttakendur í liðinu þarftu að velja tjáknið með mörgum hausum. 

Nú ætti þetta að vera komið.

Ef þú ert með spurningar og langar í svör smelltu þá í skeyti á umfi@umfi.is.

Hlökkum til að sjá ykkur í Borgarnesi.