26. október 2018
Viltu verða yfirþjálfari Íþróttaskóla HSV?
![](/media/31jngaon/12922244_10153611977543261_89628932_o.jpg?width=400&height=400&v=1d9a9cc5fc467f0 1x)
Stjórn Héraðssambands Vestfirðinga (HSV) auglýsir eftir yfirþjálfara Íþróttaskóla HSV í fullt starf. HSV er með starfssvæði í Ísafjarðarbæ og Súðavíkurhrepp og hefur 15 virk aðildarfélög innan sambandsins. HSV vinnur náið með sveitarfélögunum tveimur að uppbyggingu íþróttamála á svæðinu ásamt því að vinna með aðildarfélögum að framgangi einstakra íþróttagreina.
Yfirþjálfari Íþróttaskóla HSV ber ábyrgð á daglegum rekstri hans ásamt samskiptum við Ísafjarðarbæ, aðildarfélög, foreldra og börn í skólanum.
Nánari upplýsingar um starfið má sjá í meðfylgjandi auglýsingu.