Barnavernd: Netnámskeið
Æskulýðsvettvangurinn hefur búið til netnámskeið í barnavernd til að auka þekkingu starfsfólks og sjálfboðaliða á einelti, ofbeldi og áreitni og afleiðingunum af því.
Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsverkefni UMFÍ, Skátanna, KFUM og K og Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Markmiðið með námskeiðinu er að auka þekkingu starfsfólks og sjálfboðaliða í íþrótta- og æskulýðsfélögum um land allt á einelti, ofbeldi og áreitni sem börn og ungmenni geta orðið fyrir og afleiðingunum af því.
Mikilvægt er fyrir alla sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvituð um skyldur sínar og ábyrgð.
Starfsfólk og sjálfboðaliðar sem vinna með börnum og ungmennum þurfa að þekkja mismunandi birtingarmyndir kynferðisofbeldis, eineltis, vanrækslu og annars ofbeldis sem börn og ungmenni geta orðið fyrir og vita hvernig bregðast eigi við þegar slíkt kemur upp.
Námskeiðið er samþykkt hjá Mennta- og barnamálaráðuneyti.