Aldurs- og kynjaflokkar
- 11 - 12 ára strákar
- 13 - 14 ára strákar
- 15 - 16 ára strákar
- 17 - 18 ára strákar
- 11 - 12 ára stelpur
- 13 - 14 ára stelpur
- 15 - 16 ára stelpur
- 17 - 18 ára stelpur
Keppnisfyrirkomulag / reglur
- Spilað er á átta völlum.
- Allir leikir eru 1 x 10 mín. Hraðaskipting eftir 5 mín.
- Lengd leikja gæti þó verið endurskoðuð eftir þátttöku.
- Ef liðin eru jöfn eftir 10 mín. þá er spilað úrslitastig.
- Ef lið mætir ekki til leiks innan þriggja mínútna þá tapast leikurinn 10-0.
- Mæti hvorugt lið til leiks er kastað upp á það hvort liðið vinnur og hvort tapar.
- Hvert lið má vera skipað fjórum leikmönnum en aðeins 2 eru inn á í einu.
Monrad kerfi
Á mótinu er leikið eftir svokölluðu Monrad kerfi sem gengur út á sjálfvirka geturöðun.
Í fyrstu umferð er liðum raðað saman handahófskennt og spila lið tiltekinn fjölda leikja á hverju móti.