Aldurs- og kynjaflokkar
- 11 - 12 ára strákar
- 13 - 14 ára strákar
- 15 – 18 ára strákar
- 11 - 12 ára stelpur
- 13 - 14 ára stelpur
- 15 – 18 ára stelpur
Keppnisfyrirkomulag / reglur
- Grashandbolti er mjög einföld útgáfa af venjulegum handbolta, allir geta verið með.
- Fjórir eru saman í liði en mega vera fleiri því fjöldi varamanna má vera frá 0 og upp í 4.
- Ef lið mætir ekki til leiks inna þriggja mínútna þá tapast leikurinn 10-0.
Völlurinn
- Spilað er á 8 völlum.
- Völlurinn er minni en venjulegur handboltavöllur.
- Liðin hafa skiptisvæði sitthvoru megin við völlinn.
- Útileikmenn mega fara útaf vellinum og inná hvar sem er á skiptisvæðinu en markmaður verður að fara inná völlinn á sérstöku skiptisvæði við enda vallarins.
- Markmaðurinn má þó fara út af vellinum alls staðar á skiptisvæði liðsins.
Leikmenn
- Í upphafi leiks eru 4 leikmenn inn á í hvoru liði.
- Skylda er að hafa alltaf einn merktan markmann inn á.
Markaskor
- Helsti munurinn frá venjulegum handbolta er sá að þegar markmaður skorar gildir það tvö mörk. Falleg mörk geta einnig gefið tvö mörk en það er mat dómara hverju sinni.
- Til þess þarf þó að sýna frumleika og sérstaka tilburði.
- Ef lið skorar úr víti gildir það ávallt sem tvö mörk.
Refsingar
- Fyrir gróf brot er hægt að reka útaf.
- Leikmaður sem er rekinn út af þarf að vera út af þangað til liðið hans fær boltann aftur.
- Ef leikmaður fær tvær brottvísanir í sama leik jafngildir það útilokun frá leiknum.
Leiktími
- Leikið er í 1 x 10 mín.
- Leikurinn hefst með uppkasti dómara.
Bráðabani
- Í bráðabana stendur leikmaður á vítateigslínu og markmörður á marklínu.
- Leikmaður sendir á markvörð og hefur markvörður 3 sek. til að senda aftur á leikmanninn. Leikmaðurinn reynir þá að skora í mark andstæðingsins þar sem eingöngu markvörður andstæðinganna má reyna að varna því.
- Knötturinn má ekki koma við jörðu fyrr en eftir skot leikmanns, annars telst það ekki gilt mark.
- Liðin fá að skjóta til skiptis þar til annað liðið skorar.
Monrad kerfi
Á mótinu er leikið eftir svokölluðu Monrad kerfi sem gengur út á sjálfvirka geturöðun.
Í fyrstu umferð er liðum raðað saman handahófskennt og spila lið tiltekinn fjölda leikja á hverju móti.